Vaktir Orlofssjóðs um páska
Fréttir|31. mars 2026

Hægt verður að koma skilaboðum til Orlofssjóðs í gegnum tölvupóst um páskahelgina.
Félagsmenn, sem dvelja í sumarhúsum og íbúðum Orlofssjóðs um páska eru beðnir að hafa samband við umsjónarmenn á hverjum stað ef eitthvað kemur upp á.
Skrifstofa KÍ verður lokuð yfir páskana. Þurfi félagsmaður nauðsynlega að ná í starfsfólk Orlofssjóðs eða koma skilaboðum til sjóðsins þá getur viðkomandi sent tölvupóst á netfangið orlof@ki.is.
Starfsfólk Orlofssjóðs mun lesa tölvupóst sem hér segir:
- Fimmtudaginn 2. apríl – milli kl. 11:00-12:00
- Laugardaginn 4. apríl – milli kl. 11:00-12:00
- Mánudaginn 6. apríl – milli kl. 11:00-12:00
Gleðilega páska!