Úttekt á innleiðingu menntastefnu og fjármunum til skólastarfs
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur orðið við beiðni Kennarasambandsins um fund þar sem fjallað var um úttekt skólamálaráðs KÍ á innleiðingu menntastefnu og fjármunum til skólastarfs.
Í úttekt skólamálaráðs er innleiðing menntastefnunnar í lögum og námskrám skólastiganna skoðuð út frá réttarstöðu nemenda, námskrárbreytingum, mati á skólastarfi og eftirfylgni og fjármunum til skólastarfs og til þriggja sjóða; Námsgagnasjóðs grunnskóla, Sprotasjóðs og Þróunarsjóðs námsgagna.
KÍ sendi úttektina fyrr í sumar til menntamálaráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga með hvatningu um að beita sér fyrir auknum fjárframlögum til áðurnefndra sjóða og með beiðnum um fundi um efni úttektarinnar. Einnig var sjóðahluti úttektarinnar sendur til stjórna sjóðanna með sömu hvatningu.
Niðurstöður greiningar KÍ gefa til kynna að hægt miði að innleiða markmið um réttindi og velferð barna og ungmenna, fjölbreytta kennsluhætti og námsumhverfi og innra og ytra mat sem umbóta- og þróunaraðferð í skólastarfi. Einnig er mikil þörf á stórauknum fjárframlögum stjórnvalda í raunverulegar aðgerðir á sviði náms- og kennslugagna á skólastigunum og til að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi.
Skoðun KÍ er að niðurstöður úttektarinnar setji símenntun og starfsþróun kennarastéttarinnar og fjármuni til skólastarfs í sérstakan brennidepil.
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur, sem fyrr segir, orðið við fundarbeiðni KÍ og einnig hefur stjórn Námsgagnasjóðs grunnskóla sent menntamálaráðherra sérstakt bréf um aukna fjármuni til sjóðsins.
KÍ væntir að hinir sjóðirnir beiti sér með sama hætti. Enn sem komið er hefur menntamálaráðherra ekki orðið við fundarbeiðni KÍ.