Útskrift og námsmat í uppnámi

Fréttir|27. september 2015

Félag grunnskólakennara segir það valda áhyggjum að verið sé að innleiða nýja aðalnámskrá, nýtt vinnumat grunnskólakennara og breyta einkunnagjöf nemenda í grunnskólum landins á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu stjórnar félagsins. Þar segir að nú liggi ekki fyrir með hvaða hætti nemendur útskrifast úr 10. bekk næsta vor né hvernig meta á nemendur inn í framhaldsskóla næsta haust. Skorað er á nýja Menntamálastofnun að taka málið föstum tökum. Bókun FG um málið er svohljóðandi:

Stjórn Félags grunnskólakennara (FG) tekur heilshugar undir bókun Kennarafélags Reykjavíkur og Skólastjórafélag Reykjavíkur á fundi skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur 23. september síðastliðinn. Þar koma fram áhyggjur þeirra af stöðu innleiðingar á nýju námsmati í skólum landsins. Hvorki liggi fyrir með hvaða hætti nemendur útskrifast úr 10. bekk næsta vor.né hvernig meta eigi nemendur inn í framhaldsskóla næsta haust. Það valdi áhyggjum að á sama tíma sé verið að innleiða nýja aðalnámskrá í skólum landsins, nýtt vinnumat grunnskólakennara og einnig breyta einkunnagjöf nemenda.

Stjórn FG skorar á nýja Menntamálastofnun að taka málið föstum tökum og setja það í forgang. Jafnframt er skorað á Menntamálastofnun að hefja formlegt samstarf við félög kennara og stjórnenda og fá þannig fagleg sjónarmið þeirra sem vinna í grunnskólum landsins. Með slíku samstarfi hefði verið hægt að koma í veg fyrir vandamál sem komu upp í umfjöllun um byrjendalæsi, framkvæmd samræmdra prófa og þá óvissu sem ríkir um innleiðingu við lokamat úr grunnskóla. Stjórn FG vonar að þessir byrjunarörðugleikar verði fljótt að baki og félagið er sem fyrr reiðubúið að taka þátt í faglegu samstarfi við Menntamálastofnun sem og aðrar stofnanir sem koma að menntamálum í landinu.