Útiskólinn og skólastefna KÍ

Fréttir|28. maí 2015

Þegar skólastefna KÍ er lesin og íhuguð má fnna margt sem þess virði er að máta sig við þegar kemur að því að ígrunda starfsitt. Skólastefnunni er skipt niður í litla kafa og í hverjum þeirra eru setningarnar meitlaðar og auðskildar. Kaflinn um nemendur hefst á þessum orðum: ,,Meginmarkmið skólastarfs er að stuðla að menntun og alhliða þroska nemenda, efla sjálfstraust þeirra, jákvæða sjálfsmynd og lífsleikni. Efla skal færni og löngun nemenda til að læra, viðhalda þekkingu og leikni þannig að þeir séu virkir þátttakendur í samfélaginu.“

Í kaflanum um námið segir einnig: ,,Vettvangsferðir og önnur vettvangstenging náms eru mikilvægur þáttur í skólastarf og nýta ber náttúru og grenndarsamfélag markvisst.“ 

Við í leikskólanum Álfaborg á Svalbarðseyri erum með svokallaðan útiskóla fyrir elstu börnin, í samvinnu við yngstu börnin og kennara í Valsárskóla sem er grunnskóli hreppsins. Samvinna þessi hófst fyrir sjö árum og hefur þróast frá því að vera mjög skipulögð og kennaramiðuð í það að auka vægi lýðræðis meðal nemenda, ýta undir sjálfstraust þeirra og efa lífsleikni með útiveru. Leiknum er gert hátt undir höfði og í gegnum hann læra börnin um náttúruna, háttalag hennar og grenndarsamfélagið sitt.

Samvinna skólastiganna gengur vel og skilar hugmyndafræði leikskólans upp í fyrstu bekki grunnskólans. Auk þess má nefna að grunnskólakennarinn þekkir börnin sem hann fær til sín næsta haust og leikskólabörnin kynnast sínum verðandi skólakennara. Grunnskólanemendurnir halda í staðinn tengslum við gamla leikskólakennarann sinn þessi fyrstu tvö ár í grunnskólanum og er það styrkur fyrir mörg þeirra, sérstaklega fyrstu mánuðina á nýju skólastigi. Samfellan verður þannig meiri og yfrfærslan léttari.

Viðfangsefni útiskólans eru mörg og allt nágrennið er undir. Í því má fnna bæði skógarreiti, fjörur, læki, sveitabæi og lítið þorp með götum, húsum og umferðarreglum. Árstíðirnar og veðrið eru sífelld uppspretta viðfangsefna sem áhugavert er að fást við og kynnast nánar. Undanfarin ár hefur það verið viðfangsefni okkar að fara alltaf í útiskóla sama hvernig viðrar og þá getur reynt á hvernig sé best að haga sér og hvar sé best að vera. Það hefur verið reynsla okkar að þessi útivera gef börnunum hvað mesta reynslu, og því höfum við komist að þeirri niðurstöðu að varla nokkurt veður sé svo slæmt að við getum ekki verið a.m.k. smástund úti í þvi. Þetta hefur hvatt til hugleiðinga um hvernig best sé að búa sig og krafst lausna á því hvort eða hvernig hægt sé að komast áfram gegn vindi og stórhríð eða slagviðri og hvar sé skjól að fnna.

Útiskólinn hefur í þessi 7 ár haldið einu föstu verkefni og það er hin árlega fjöruhreinsun. Það verkefni er ekki unnið á einum degi heldur tekur það nokkur skipti. Þá söfnum við smáruslinu í poka og tökum með okkur heim en stóra ruslið sem fokið hefur á land setjum við í hrúgur og fáum að endingu starfsmann hreppsins á bíl með kerru sem við setjum hrúgurnar á og komum þeim síðan fyrir í viðeigandi gámum á gámasvæði hreppsins. Þannig innleiðum við ábyrgð á samfélaginu sem við búum í hjá börnunum. Þessi ruslahreinsun gerir þau einnig meðvituð um vistsporin sem mennirnir skilja eftir sig, sem oftast nær bitna á fuglum, dýrum og náttúrunni.

Reynsla okkar er að Útiskóli er frábær kennslustofa bæði í leik- og grunnskóla. 

Dýrleif Skjóldal (Dilla), leikskólakennari í Álfaborg á Svalbarðsströnd. 

 

Greinin birtist í Skólavörðunni, 4. tbl. 2015. Skólavörðuna má nálgast hér og einnig er hægt að lesa hana í appi sem fæst í AppStore og á GooglePlay.