Utís Online: Starfsþróunarveisla

Skólavarðan ræddi við Ingva Hrannar Ómarsson menntafrömuð um Utís Online, stærstu menntaráðstefnu Íslands, sem hann stofnaði meðal annars í þeim tilgangi að gefa skólum tækifæri til að fá heimsklassa ráðstefnu fyrir sitt starfsfólk, í sinni heimabyggð.
Menntaráðstefnan Utís Online er haldin annað hvert ár fyrir kennara, stjórnendur og starfsmenn á öllum skólastigum, hvar sem er á landinu. Ráðstefnan fer næst fram dagana 20.-21.september, frá 13-16 á föstudegi og 10-15 á laugardegi, og skráning er hafin. Skráning fer fram á www.utis.online og þar eru einnig allar upplýsingar um netráðstefnuna.
Tilurð ráðstefnunnar
„Utís Online er afsprengi af Utís ráðstefnunum sem hafa oftast verið haldnar á Sauðárkróki í gegnum árin,“ segir Ingvi Hrannar. „Vegna gríðarlegrar ásóknar var ákveðið að færa fyrirlestrana á rafrænt form í gegnum Utís Online og gera þá þannig aðgengilega fleirum óháð staðsetningu. Utís vinnustofurnar eru fámennar og haldnar á Sauðárkróki annað hvert ár, á meðan Utís Online er á netinu“, segir Ingvi Hrannar þá.
Við hverju má búast?
Í ár verða 20 erlendir heimsklassa fyrirlesarar (allir textaðir á íslensku) sem fjalla m.a um læsi, stærðfræði, upplýsingatækni, stjórnun, farsæld nemenda og starfsmanna, bekkjarstjórnun í íþróttum, list- og verkgreinum, samstarf heimilis og skóla svo eitthvað sé nefnt, útskýrir Ingvi. „Að auki frumsýnum við hátt í 20 ný ferðalög um íslenskt skólakerfi, í samstarfi við Samtök áhugafólks um skólaþróun, þar sem við munum taka þátttakendur í ferðalög um það besta sem er að gerast í leik-, grunn- og framhaldsskólum á Íslandi.“
Allir þátttakendur fá að auki sendan þátttökupakka í pósti um viku fyrir ráðstefnuna, en pakkinn mun m.a. innihalda glæsilega ígrundunarbók og annað góðgæti, segir hann.
Aðsendar myndir úr þátttökupartýum Utís Online.
Þátttökupartý um land allt
Þó að ráðstefnan sé á netinu tekur fólk þátt í rauntíma, flestir í sínum skóla með samstarfsfólki, í svokölluðum þátttökupartýum. „Þátttökupartýin eru mikilvægur hluti af Utís Online. Við eigum það til að einangrast á netráðstefnum, en Utís gengur einmitt út á að hittast, ígrunda og deila. Það var þess vegna sem við hófum að skipuleggja þátttökupartý með skólum um land allt,“ segir Ingvi Hrannar. „Árið 2022 voru tæplega 120 skólar á Íslandi með þátttökupartý þar sem starfsmenn þeirra tóku þátt saman, borðuðu jafnvel hádegismat saman, höfðu gott bakkelsi og margir fóru saman út að borða.“
„Það er alveg magnað að sjá hvað fólk gerir og ég hvet sem flestar stofnanir til að huga að þátttökupartýi í ár þar sem starfsmenn taka þátt saman,“ segir hann.
Styttist í næstu starfsþróunarveislu
Hægt er að kynna sér ráðstefnuna og skrá sig til leiks á www.utis.online „Kynntu þér fyrirlesarana, þátttökupartýin og hvettu samstarfsfólk þitt með þér. Þetta verður algjör starfsþróunarveisla, eða eins og einn þátttakandi sagði eftir Utís Online 2022: „Þetta er langbesta endurmenntun sem ég veit um“. Sjáumst á netinu í september!“, segir Ingvi Hrannar að lokum.
