Útinám leikskólabarna í Björnslundi

Edda Lydia Þorsteinsdóttir, kennari og deildarstjóri í Björnslundi, útinámsstofu leikskólans Rauðhóls, rannsakaði útinám með styrk úr Rannsóknasjóði KÍ.
Edda Lydia Þorsteinsdóttir, kennari og deildarstjóri í Björnslundi, útinámsstofu leikskólans Rauðhóls í Norðlingaholti, skoðaði útinám leikskólabarna í Björnslundi í rannsókn sinni „Það kemur eitthvað út úr jólatrénu“. Hún hlaut styrk úr Rannsóknasjóði KÍ veturinn 2022-2023 til verkefnisins. Hér fyrir neðan er kynning Eddu Lydiu á verkefninu.
Fræðsla á forsendum barnanna
Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur. Í fyrsta lagi að skoða hvort börnin veiti umhverfi sínu í Björnslundi athygli og hvort að þeir náttúrulegu hlutir sem þar finnast veki hjá þeim áhuga til að fræðast betur um þá og hvernig þau nýta umhverfi Björnslundar í leik sínum. Í öðru lagi að skoða hvernig ég sem kennari nýti námstækifærin sem skapast í skóginum til að efla sjálfstæði, þekkingu og þroska barna.
Markmið rannsóknarinnar er að stuðla að tækifærum til aukinnar þekkingar um líffræðilegan fjölbreytileika í umhverfi Björnslundar með því að vera tilbúin að fræða þegar áhugi vaknar.
Námstækifærin leynast víða
Við gerð þessarar rannsóknar var notast við starfendarannsóknir en ég hafði kynnst þeirri rannsóknaraðferð gegnum nám mitt og starf. Þar sem ég hef starfað lengi á sama stað fannst mér tilvalið að rýna inn á við og skoða eigin starfshætti. Í upphafi var ég mikið með verkefni fyrir börnin og fræðslu um líffræðilegan fjölbreytileika. Börnin leystu verkefnin sem ég lagði fyrir en æ oftar heyrði ég frá þeim „Hvenær megum við leika?“ Ég var föst í þeirri hugsun að þau myndu líklega ekki læra neitt um náttúruna með því að „bara“ leika sér í henni.
Eftir mikla ígrundun ákvað ég að einbeita mér að því að skoða leik barnanna í náttúrunni og ég tók eftir því að þau voru sjálf að uppgötva skóginn, en í þetta skiptið á sínum forsendum. Því langaði mig að skoða betur þau námstækifæri sem felast í leiknum í náttúrunni í Björnslundi. Þátttakandi í rannsókninni var ég sjálf og börn af tveim elstu deildum leikskólans sem komu í skóginn á fimm vikna fresti allt skólaárið. Ég lagði áherslu á að skoða leik barnanna í gegnum allar árstíðir enda býður hver árstíð upp á fjölbreytt námstækifæri og áhugavert er að fylgjast með börnunum leika sér í gegnum þær allar.

Í skóginum efla börnin hreyfifærni, hugrekki, skynjun og samhæfingu með því að klifra í trjám, hoppa af steinum, ganga berfætt í grasi, lykta af hlutum og koma við fyrirbæri í náttúrunni
Fróðleiksfús, áhugasöm og forvitin skógarbörn
Niðurstöðurnar eru margvíslegar. Náttúrulegt umhverfi er raunverulegt og áþreifanlegt og þannig bjóða ólíkar aðstæður í umhverfi Björnslundar upp á tækifæri til að nota líkamann og skynjun á virkari hátt en ella. Í skóginum efla börnin hreyfifærni, hugrekki, skynjun og samhæfingu með því að klifra í trjám, hoppa af steinum, ganga berfætt í grasi, lykta af hlutum og koma við fyrirbæri í náttúrunni. Í gegnum árstíðirnar upplifðu börnin mismunandi veðurlag, vind, rigningu, snjó og sól en þessir þættir hafa mismunandi áhrif á náttúruna og þarna fengu þau tækifæri til að kynnast áhrifum þeirra á skóginn, til að mynda þegar tré brotnar undan vindi eða snjóálagi.
Börnin voru fróðleiksfús, áhugasöm og forvitin um það umhverfi sem er að finna í Björnslundi og í gegnum vettvangsskráningarnar mátti sjá að í leik sínum veittu börnin náttúrunni og umhverfinu athygli, mörg þeirra voru dugleg að koma með hluti eða ná í kennara til að sýna þeim það sem vakti athygli ásamt því að spyrja margvíslegra spurninga sem þau vildu svör við. Þau tóku upp hluti og fundu mismunandi áferð, lögun, eiginleika, þyngd og lykt ásamt því að nota þá sem leikmuni í leik sínum eða í listsköpun.
Náttúran og umhverfi skógarins skapaði tækifæri til að virkja ímyndunaraflið og með því urðu til fjöldi leikja og ævintýri. Til að auðga leikinn náðu börnin í náttúrulegan efnivið á borð við drumba, greinar, köngla og steina. Í gegnum rannsóknina mátti sjá að börnin undu sér almennt vel úti og voru glöð, þau voru iðulega upptekin við leik og nám og gátu endalaust hlaupið um, skriðið undir trén, klifrað í trjám og fundið greinum mismunandi hlutverk. Ég tók eftir að minna varð um óþarfa árekstra og börnin upplifðu nýjar og sterkar hliðar á sjálfum sér.
Frelsið í skóginum lykillinn að námstækifærum
Þegar ég skoða hvernig ég nýtti námstækifærin í Björnslundi sá ég hversu mikilvægt var að gefa börnunum tíma og rými til að kanna náttúruna á eigin forsendum. Það að börnin höfðu frjálst val um það viðfangsefni sem þau vildu taka sér fyrir hendur og frelsi til að ákveða þátttöku sína var mikilvægt. Þetta frelsi í skóginum gaf þeim færi á að nota eigið hugmyndaflug til að skapa leiki og sýna náttúrunni áhuga. Ég tók eftir því að börnin mynduðu tengsl við umhverfið með veru sinni í Björnslundi. Þau fengu tækifæri til að kynnast ólíkum hlutum náttúrunnar, læra á ólíka þætti náttúrunnar, og í gegnum reynslu sína fengu þau tækifæri til að gera hugtök náttúrunnar merkingarbærri.
Hér má sjá börnin í Björnslundi upptekin við leik og nám.
Eitt af því sem ég hef lagt ríka áherslu á í Björnslundi er að vera til staðar, fylgjast með því sem á sér stað og vera meðvituð um þau námstækifæri sem skapast. Í gegnum rannsóknina upplifði ég að börnin voru dugleg að taka upp hluti í náttúrunni, skoða þá og velta fyrir sér. Þarna sá ég mikilvægi þess að grípa tækifærið til að fræða og þegar áhuginn kviknaði hjá þeim að fyrra bragði þá höfðu þau meiri áhuga á að rannsaka hann nánar. Ég lagði mig fram um að leyfa börnunum að upplifa Björnslund á þeirra eigin forsendum að eigin frumkvæði og sjálfstæði. Ég hef fjölbreyttan viðbótarefnivið til staðar og þannig hafa börnin ólíkar leiðir til að vinna úr hugmyndum sínum, skapa, rannsaka, finna lausnir, tjá sig og undrast og ég sá að börnin voru dugleg að nýta það sem ég bauð upp á.
Eftir að hafa varið þetta löngum tíma í rannsóknina sá ég, líkt og kom fram í öðrum rannsóknum, að ekki er hægt að gera ráð fyrir að börn læri um hugtök og eiginleika náttúrunnar eingöngu með veru sinni í henni. Hins vegar sýnir rannsókn mín að með því að setja orð á hugtök og athafnir, hvetja til umræðna og ígrundunar læra börn um eiginleika hluta í náttúrunni. Því þarf að nota rétt hugtök og heiti á hlutum í náttúrunni og ég sem kennari þarf að vera meðvituð um að spyrja spurninga um náttúruna, hvetja til samræðna og vera undirbúin til að fræða þegar við á.
Í upphafi upplifði ég að kennarahlutverk mitt varð erfiðara, því að í stað þess að bjóða upp á fyrirframskipulögð verkefni þurfti ég að finna út úr því hvenær ég ætti að stíga inn í aðstæður til að kveikja áhuga. Þessir kennsluhættir eru lifandi og krefjast þess að ég mæti börnunum með opnum hug og sé tilbúin að takast á við þá óvæntu lærdómsferla sem áhugi og forvitni barnanna leiða mig inn á.