Úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs taka breytingum

Fréttir|2. desember 2019

Félagsmenn KÍ eru hvattir til að kynna sér breyttar úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs KÍ sem taka gildi 1. janúar 2020.

Nýjar úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs KÍ taka gildi 1. janúar 2020. Helstu breytingar eru samruni meðferðarstyrkja hjá „löggiltum heilbrigðisstarfsmanni“ (sjá á vef Landlæknis), ekki er lengur styrkt það sem íslenska heilbrigðiskerfið niðurgreiðir/tekur þátt í og breyttar reglur hvað varðar sjúkradagpeninga o.fl.

Samkvæmt reglum stjórnar Sjúkrasjóðs KÍ skal endurskoða úthlutunarreglur sjóðsins eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Síðast var reglum breytt 1. desember 2017.

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér nýju reglurnar og ef þeir eiga/eru með útistandandi reikninga/kvittanir að sækja um til sjóðsins áður en nýju reglurnar taka gildi.

Athugið:

  • Að ekki verður hægt að sækja styrki samkvæmt eldri reglum eftir 31. desember 2019.
  • Opnað verður fyrir umsóknir samkvæmt hinum nýju reglum á hádegi 2. janúar 2020.
  • Skrifstofa KÍ verður lokuð á Þorláksmessu og á milli jóla og nýars. Ef félagsmenn lenda í vandræðum með að sækja um meðan á jólalokun stendur, þá vinsamlegast sendið tölvupóst á sjodir@ki.is fyrir áramót og þá verður hægt að kanna málið í byrjun nýs árs.

Úthlutunarreglur Sjúkrasjóðs KÍ sem taka gildi 1. janúar 2020 í pdf-formi.