Úthlutun orlofshúsa fyrir sumarið 2023 er lokið
Fréttir|14. mars 2023

Alls bárust umsóknir frá 805 félagsmönnum en samtals var 300 vikum úthlutað.
Umsóknarfrestur um úthlutun vikuleigu í orlofshúsum Orlofssjóðs KÍ sumarið 2023 rann út á hádegi í dag. Félagsmenn eiga að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um úthlutun og viljum við endilega heyra frá ykkur ef þið hafið sótt um en ekki fengið póst.
Alls bárust umsóknir frá 805 félagsmönnum en samtals var 300 vikum úthlutað.
Hér hægt að sjá hver punktastaðan var hjá þeim sem fengu tilteknar vikuleigur í úthlutun.
Orlofsvikur, sem félagsmenn þiggja ekki, verður hægt að bóka þegar opnað verður fyrir dagsleigur.
Opnunardagar bókana dagsleiga eru sem hér segir:
- Mánudagur 20. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
- Þriðjudagur 21. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
- Miðvikudag 22. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri geta byrjað að bóka
- Fimmtudag 23. mars kl. 18:00 – Opnar endanlega fyrir alla – einnig félagsmenn FKE sem eiga punkta