Úthlutun orlofshúsa fyrir sumarið 2022 er lokið

Fréttir|14. mars 2022

Alls bárust umsóknir frá 789 félagsmönnum en samtals var 340 vikum úthlutað.

Umsóknarfrestur um úthlutun vikuleigu í orlofshúsum Orlofssjóðs KÍ sumarið 2022 rann út á hádegi í dag. Félagsmenn eiga að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um úthlutun.

Alls bárust umsóknir frá 789 félagsmönnum en samtals var 340 vikum úthlutað. Hér er hægt að sjá hver punktastaðan var hjá þeim sem fengu tilteknar vikuleigur í úthlutun.

Orlofsvikur, sem félagsmenn þiggja ekki, verður hægt að bóka þegar opnað verður fyrir dagleigur (flakkara). Opnunardagar bókana dagleiga (flakkara) eru sem hér segir:
• 17. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri
• 18. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri
• 19. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri
• 20. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 0 til - 23 punkta
• 20. mars kl. 18:00 – FKE-félagar sem eiga punkta