Úthlutun orlofshúsa fyrir sumar 2024 er lokið

Fréttir|12. mars 2024

Alls bárust Orlofssjóði 973 umsóknir og var 324 vikum úthlutað.

Umsóknarfrestur um úthlutun vikuleigu í sumarhúsum Orlofssjóðs fyrir komandi sumar rann út á hádegi í dag. Félags eiga að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um úthlutun. Þau sem hafa sótt um en ekki fengið póst eru beðin að hafa samband við Orlofssjóð.
Alls bárust umsóknir frá 973 frá félagsmönnum en samtals var 324 vikum úthlutað.

Hér er hægt að sjá hver punktastaðan var hjá þeim sem fengu tilteknar vikuleigur í úthlutun.

Orlofsvikur, sem félagsmenn þiggja ekki, verður hægt að bóka þegar opnað verður fyrir dagsleigur.

Opnunardagar bókana dagsleiga eru sem hér segir

  • Mánudagur 18. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Þriðjudagur 19. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Miðvikudagur 20. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Fimmtudagur 21. mars kl. 18:00 – Opnar endanlega fyrir alla – einnig félagsmenn FKE sem eiga punkta