Úthlutun orlofshúsa fyrir næsta sumar lokið

Fréttir|11. mars 2025

Ríflega 800 félagsmenn Kennarasambandsins sóttu um orlofshús næsta sumar. Alls var 320 vikum úthlutað. Frestur til að sækja um rann út á hádegi í dag.

Umsóknarfrestur um úthlutun vikuleigu í orlofshúsum Orlofssjóðs KÍ sumarið 2025 rann út á hádegi í dag 11. mars. Alls bárust umsóknir frá rúmlega 800 félagsmönnum en samtals var um 320 vikum úthlutað.

Félagsmenn sem sóttu um, eiga að hafa fengið tölvupóst með upplýsingum um úthlutun og viljum við endilega heyra frá ykkur ef þið hafið sótt um en ekki fengið póst.

Hér er hægt að sjá hver punktastaðan var hjá þeim sem fengu tilteknar eignir í hverri viku í úthlutun. Eins og sjá má ganga þær ekki allar út og verður þeim sem eftir eru bætt við dagsleigur.

Þeir félagar sem fengu úthlutaða viku hafa 6 daga til að staðfesta bókunina með greiðslu. Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir hádegi mánudaginn 17. mars, missir viðkomandi af úthlutaðri viku.

Orlofsvikur, sem félagsmenn þiggja ekki, verður hægt að bóka þegar opnað verður fyrir dagsleigur.

 

Opnunardagar bókana dagsleiga eru sem hér segir:

  • Mánudagur 17. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 300 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Þriðjudagur 18. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 100 punkta eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Miðvikudag 19. mars kl. 18:00 – félagsmenn sem eiga 1 punkt eða fleiri geta byrjað að bóka
  • Fimmtudag 20. mars kl. 18:00 – Opnar endanlega fyrir alla – einnig félagsmenn FKE sem eiga punkta