Úthlutun námsleyfa 2024-2025 lokið

Úthlutun námsleyfa vegna skólaársins 2024-2025 lauk í nóvember. Um 29% umsækjenda hlutu leyfi.
Námsleyfasjóði bárust 163 fullgildar umsóknir. Fjármagn til úthlutunar leyfði að veitt yrðu 48 námsleyfi. Því var aðeins hægt að veita um 29% umsækjenda leyfi og því ljóst að mörgum fullgildum umsóknum varð að hafna, segir í tilkynningu frá Námsleyfasjóði.
Að þessu sinni var ákveðið að nýta ekki heimild 6. gr. reglna um Námsleyfasjóð um að auglýsa úthlutun til forgangsverkefna. Námsleyfum var skipt á milli landshluta með hliðsjón af fjölda starfandi kennara og stjórnenda eftir landshlutum.
Öllum umsækjendum hefur verið send rafræn tilkynning um niðurstöðu sjóðsins á Mínar síður. Þá hafa nöfn námsleyfishafa verið birt á vefsíðu Námsleyfasjóðs, samkvæmt 15. gr. reglna um Námsleyfasjóð.