Úthlutun lokið – opnað fyrir flakkara á mánudag

Fréttir|14. apríl 2020

Alls sóttu tæplega 600 félagsmenn KÍ um sumarhús í úthlutun þar sem punktaeign ræður för.

Orlofssjóður KÍ hefur sent félagsmönnum upplýsingar um úthlutun sumarhúsa fyrir komandi sumar. Að þessu sinni var tekin upp sú nýbreytni að félagsmenn gátu sótt um allt að sex eignir og ræður punktaeign hverjir fá úthlutað. Frestur til að sækja um rann út á miðnætti á páskadag.

Alls bárust umsóknir frá rétt tæplega 600 félagsmönnum, sumir sóttu aðeins um eitt hús en aðrir um allt að sex húsum. Aðeins virkir félagsmenn fengu úthlutað. Þeir sem hyggjast leigja þá eign sem þeim var úthlutað þurfa að inna greiðslu af hendi í síðasta lagi fimmtudaginn 16. apríl. Ef félagsmaður vill ekki leigja þá eign sem honum var úthlutað þá sleppir hann því einfaldlega að greiða. Þær eignir sem ganga af verða settar í endurúthlutun næstkomandi föstudag.

Opnað verður fyrir bókanir á svokölluðum „flökkurum“ næstkomandi mánudag.

Opnunardagar fyrir bókanir flakkaraeigna sumarið 2020 sem hér segir:

  • Mánudagur 20. apríl kl. 18:00 00 – þeir sem eiga 300 punkta eða fleiri
  • Þriðjudagur 21. apríl kl. 18:00 – þeir sem eiga 100 punkta eða fleiri
  • Miðvikudagur 22. apríl kl. 18:00 – þeir sem eiga 1 punkt eða fleiri
  • Fimmtudagur 23. apríl kl. 18:00 – 0 til -23 punkta og FKE félagar sem eiga punkta

Upplýsingar um orlofseignir sumarið 2020 er að finna á vef KÍ en einnig er hægt að fara beint á Orlofsvef KÍ þar sem hægt er að skoða húsin og hvaða tímabil eru laus auk þess að ganga frá bókun ef áhuga er fyrir hendi.

Hafi félagsmenn spurningar varðandi orlofshúsin eða annað sem þeim tengist er best að senda póst á orlof@ki.is.