Utdanningsforbundet styður verkföll KÍ

„Við veitum hér með kennurum í verkfalli fullan stuðning í þeim kjaradeilum sem nú standa yfir á Íslandi,“ segir í stuðningsyfirlýsingu frá norska kennarasambandinu Utdanningsforbundet.
Norska kennarasambandið Utdanningsforbundet lýsti í dag yfir stuðningi með verkfallsaðgerðum félaga í Kennarasambandi Íslands. Utdanningsforbundet er næst stærsta stéttarfélag Noregs og stærsta stéttarfélaga kennara þar í landi, með yfir 190.000 félagsmenn.
Í yfirlýsingunni, sem undirrituð er af Geir Røsvoll, formanni sambandsins, segir:
Utdanningsforbundet styður verkfallið á Íslandi
Við stöndum með kennurum
Við í Utdanningsforbundet veitum hér með kennurum í verkfalli fullan stuðning í þeim kjaradeilum sem nú standa yfir á Íslandi. Ekki hefur náðst árangur í viðræðum Kennarasambands Íslands (KÍ) og ríkis og sveitarfélaga. KÍ krefst þess að það eigi að borga sig að vera kennari:
Fjárfestum í kennurum - börnin okkar eiga skilið fagmennsku og stöðugleika.
Frá 29. október 2024 hafa fjórir leikskólar, þrír grunnskólar, tveir framhaldsskólar og tónlistarskóli verið í verkfalli.
Utdanningsforbundet óskar félagsfólki í Kennarasambandi Íslands góðs gengis í frekari baráttu!
Með kærri kveðju,
Geir Røsvoll, formaður
Hér er hægt að lesa yfirlýsinguna í heild á upprunamáli.