Úrslit í stjórnarkjöri FL liggja fyrir
Fréttir|11. mars 2014
Úrslit í rafrænni kosningu til stjórnar Félags leikskólakennara hafa verið kunngerð. Kosningu meðal félagsmanna FL lauk í gærkvöld.
Niðurstaða kosninganna er sem hér segir:
Aðalmenn
- Fjóla Þorvaldsdóttir 353 atkvæði
- Dýrleif Skjóldal 281 atkvæði
- Hanna Berglind Jónsdóttir 277 atkvæði
- Heiða Ingólfsdóttir 220 atkvæði
Varamenn
- Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir 201 atkvæði
- Hallgerður Gunnardóttir 189 atkvæði
- Laufey Heimisdóttir 143 atkvæði
Alls voru 2.220 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 437, eða 19,7%, og auðir seðlar voru 21, eða 4,8%.
Ný stjórn Félags leikskólakennara tekur við á aðalfundi félagsins 25. apríl næstkomandi og situr fram að aðalfundi árið 2017. Formaður FL, Haraldur Freyr Gíslason, er sjálfkjörinn en kosið verður í önnur trúnaðarstörf á aðalfundinum í apríl.