Úrslit í forsíðumyndakeppni Orlofssjóðs liggja fyrir

Fréttir|1. mars 2017

Rúmlega eitt hundrað ljósmyndir bárust í keppnina að þessu sinni en frestur til að senda inn ljósmynd rann út 10. febrúar síðastliðinn.

Úrslit liggja fyrir í forsíðumyndakeppni Orlofssjóðs KÍ vegna Ferðablaðsins 2017. Sigurvegarinn er Herdís Kristinsdóttir, grunnskólakennari í Breiðagerðisskóla. 

Rúmlega eitt hundrað ljósmyndir bárust í keppnina að þessu sinni en frestur til að senda inn ljósmynd rann út 10. febrúar síðastliðinn. Þetta er í fjórða skipti sem Orlofssjóður KÍ fer þessa leið við val á forsíðumynd Ferðablaðsins. 

Dómnefnd skipuðu Elís Þór Sigurðssons, formaður Orlofssjóðs KÍ, Friðþjófur Helgason, ljósmyndari og kvikmyndatökumaður, og Arndís Þorgeirsdóttir, fyrir hönd útgáfusviðs KÍ. 

Orlofssjóður óskar Herdísi til hamingju með sigurinn en verðlaunin eru 45 þúsund krónur. Þá sendir Orlofssjóður öllum þeim sem sendu inn myndir innilegar þakkir fyrir þátttökuna. 

Ferðablaðið 2017 er væntanlegt síðar í þessum mánuði.