Úrslit gerð kunn í hugverkasamkeppni JAKÍ

Staðalímyndir, drusluskömm, hinsegin, kynsegin og líkamsvirðing eru hugtök sem koma fyrir í verðlaunaverkum hugverkasamkeppni jafnréttisnefndar KÍ sem er nýafstaðin. Verðlaunahöfundar eru vel yfir 100 talsins enda voru sum verkanna unnin í mikilli samvinnu margra nemenda.
Úrslit í hugverkasamkeppni jafnréttisnefndar KÍ (JAKÍ) liggja fyrir. Veitt voru verðlaun í fimm flokkum og koma verðlaunhafar úr grunnskólanum á Drangsnesi, Lækjarskóla, Tækniskóla Íslands, Grunnskóla Fjallabyggðar og leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri.
Hugverkakeppnin gekk út á að ræða hugtök jafnréttis og voru efnistök keppenda frjáls. Það sést vel þegar verðlaunaverkin eru skoðuð að nemendur á öllum skólastigum eru frjóir og hugmyndaríkir þegar kemur að umræðu um mikilvæg hugtök og sköpun. Þetta var í fyrsta sinn sem blásið er til hugverkasamkeppni af þessu tagi og barst fjöldi frábærra verka til dómnefndar. Keppendum var skipt eftir skólastigum; í leikskólaflokk, þrjá grunnskólaflokka (1.-4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk) og framhaldsskólaflokk.
Verðlaunahafar eru þessir
Leikskólinn
Sigur úr býtum í þessum flokki báru leikskólabörn í Bergi, í leikskólanum Tröllaborgum, fædd 2015 og 2016. Verkið kallast Blær og fjallar um líkamsvirðingu.
Umsögn dómnefndar
Blær er einstaklingur sem leikskólabörnin mótuðu, allt frá því að setja fram beinagrindina til eiginleika og útlits. Verkefnið hefur fjölþætta nálgun, er vandað og sýnir fagmennsku kennara og áhuga barnanna í skýru ljósi. Hér er verkefni sem sýnir hvernig byggja má upp samtal í gegnum reynslumiðað nám og þekkingarleit um kynin, margbreytileika og félagsmótun. Hér hefur kennari í samtarfi við nemendur nýtt einstakt tækifæri til að ræða staðal - og kynjamyndir, eins og kemur fram „Í þeirra huga var ekkert eðlilegra en að tvö kyn væru saman í einum líkama“. Það er hvetjandi að sjá hvernig vinna má með kynjasjónarmiðin með okkar yngsta fólki og taka dómarar heilshugar undir lokaorð samantektar með verkefninu, framtíðin er björt!
Kennarar sem voru á kantinum voru Sigríður Fossdal, Rut Viktorsdóttir, Óli Steinar Sólmundarson, Lovísa Jónsdóttir og Berglind Róbertsdóttir.
...

Grunnskólinn 1. til 4. bekkur
Listamennirnir sem unnu til verðlauna í þessum flokki eru yfir 100 talsins og eru nemendur við Grunnskóla Fjallabyggðar. Krakkarnir veltu fyrir sér hugtakinu staðalmyndum í verkinu sem ber titilinn Allskonar.
Umsögn dómnefndar
Verkefnið fól í sér að nemendur áttu að hanna sinn eigin myndræna kubb. Kubbarnir áttu að fást við hugtakið staðalmyndir og því fjölmargar áhugaverðar hugmyndir sem sjá má í verkinu. Kubbunum hefur síðan verið raðað saman til þess að gefa heilstæða mynd. Verkið er litskrúðugt sem er svo góð táknmynd fyrir fjölbreytileika, þegar allt þetta kemur saman má svo sjá fegurðuna í margbreytileikanum, hvernig ólíkar hugmyndir raðast saman og hvernig það talar gegn því hefðbundna sem er oft svo hamlandi.
...
Grunnskólinn 5. til 7. bekkur
Sigurvegarar í þessum flokki eru Guðbjörg Ósk, Kristjana Kría og Sara Lind, nemendur í Grunnskólanum á Drangsnesi. Verk þeirra ber titilinn Hinsegin/kynsegin (Trans).
Umsögn dómnnefndar
Verkið er mynd máluð af einstaklingi sem stendur fyrir framan spegil. Á verkinu kemur skýrt fram að einstaklingurinn sér ekki samhljóm hjá sjálfum sér og birtingarmynd sinni. Þannig tekst verkinu að draga kjarnyrt fram hvernig transeinstaklingur getur þurft að takast á við sjálfsmynd sína. Myndin er opin fyrir túlkun, þrátt fyrir einfalda framsetningu. Verkið tekur afstöðu til hugtakanotkunar og jaðarsetningu einstaka hópa, þetta er gert í fylgitexta þar sem tekið er afstöðu til hugtaksins hinsegin. Dómara völdu verkið byggða á þessum rökstuðningi en jafnframt þótti það áhugavert og vel unnið.
...
Grunnskólinn 8. til 10. bekkur
Málverk um drusluskömm eftir Svövu Rán Gilbertsdóttur, nemanda í Lækjarskóla, var valið besta verkið í þessum flokki.
Umsögn dómnefndar
Verkið er mynd sem sýnir einstakling lygna aftur augum, umvafinn höndum sem á standa ýmist lýsingarorð eða setningar. Verkið ber titillinn drusluskömm og hefur skýra vísun í hugtakið. Myndin stóð upp úr fjölda annarra verka, fyrir verklag hvað listræna hæfileika og túlkun varðar, en einnig fyrir skýran og átakanlegan boðskap. Ekki fer á milli mála hver efnistökin eru, myndin nær að koma inn á þjáninguna og kúgunina sem drusluskömm felur í sér. Hún er bæði átakanleg og erfið, en sýnir skýrt að höfundur hefur skilning á efninu og nær að koma því frá sér. Efnistökin drusluskömm hefur verið mikið í umræðunni og verkið talar skýrt inn í samtímann.
Sjá mynd í albúmi hér að neðan.
...
Framhaldsskólinn
Sigurvegarar í þessum flokki eru Hálfdán Helgi Matthíasson, Egill Andri Reynisson, Þórdís Matthea Eiríksdóttir og Axel Bjarkar Sigurjónsson, nemendur í Tækniskólanum. Þau völdu að fjalla um baráttu hinsegin fólks í Póllandi í formi stuttmyndar.
Umsögn dómnefndar
Sigurverkið í flokki framhaldskóla hlýtur „stutt- og fræðslumyndin“ Regnbogaplágan. Verkið er bæði fræðilega og tæknilega vel unnið, ljóst er að mikil vinna og heimildasöfnun sé til grundvallar myndinni. Umræðuefnið er staða hinsegin fólks í Póllandi. Verkefnið nálgast viðfangsefnið á fjölbreyttan hátt, af virðingu fyrir efninu. Efnistökin og framsetning sýnir fram á að höfundur hefur lagt mikla alúð, vandvirkni og vinnusemi í verkefnið. Verkið setur stöðu hinsegin baráttunnar í Póllandi í félags-, pólitískt-, trúar- og sögulegt samhengi. Snertiflötur verkefnisins hefur tengsl við íslenska menningu og vekur réttilega athygli á bága stöðu hinsegin baráttunnar innan Evrópu, sér í lagi í Póllandi. Dómarar voru sammála um að myndbandið væri til þess fallið að vekja fólk til umhugsunar, það var bæði fræðandi og faglega unnið, segir í umsögn dómnefndar.
Sjá myndir í albúmi hér að neðan.
...
Um verðlaunin
Verðlaunahafar fengu viðurkenningarskjal; tvö voru afhent á höfuðborgarsvæðinu í dag en hin hafa verið send út á land með pósti. Ástæðan er sú að ekki reyndist unnt að halda verðlaunahátíð vegna COVID-19. Verðlaunahafar fá auk þess spjaldtölvu í viðurkenningarskyni.
Jafnréttisnefnd KÍ þakkar sigurvegurum fyrir sitt framlag og líka öllum þeim fjölmörgu sem sendu verk í keppnina.