Uppvakningar, gul stígvél, plokkfiskur og pitsa

Fréttir|6. nóvember 2020

Nú liggur fyrir hvaða smásögur hljóta verðlaun í Smásagnasamkeppni KÍ þetta árið. Verðlaunasögurnar eru frábær lesning og titlanir bera vott um hugmyndaríka höfunda.

Úrslit eru hér með kunngerð í Smásagnasamkeppni KÍ 2020. Venjan hefur verið að afhenda verðlaun við hátíðlega athöfn á Alþjóðadegi kennara, 5. október. Það þarf víst ekki að tíunda að árið 2020 eru flestir hlutir öðruvísi en venja er.

Við tilkynnum því nöfn sigurvegaranna hér á vef Kennarasambandsins. Hátt í tvö hundruð sögur bárust þetta árið en þetta er sjötta skiptið sem efnt er til þessarar skemmtilegu keppni.

Úr vöndu var að ráða fyrir dómnefnd að velja bestu sögurnar úr mörgum góðum. Dómnefnd var sem fyrr skipuð Þórdísi Gísladóttur rithöfundi, Kristjáni Jóhanni Jónssyni, fyrrum dósent á Menntavísindasviði HÍ, og Bryndísi Jónsdóttur frá Heimili og skóla. Við þökkum dómnefnd vel unnin störf og þá sendum við kennurum okkar bestu þakkir fyrir að hvetja nemendur til ritstarfa.

Við óskum verðlaunahöfum til hamingju – þeir fá sent viðurkenningarskjal og spjaldtölvu.

Eftirtaldar smásögur hljóta verðlaun þetta árið

Flokkur: leikskólinn

Vinir mínir – Darin Mardin Azeez

Darin Mardin Azees er höfundur sögunnar Vinir mínir. Í sögunni segir Darin frá því hvernig það er að tilheyra tveimur löndum; Íslandi og Kúrdistan. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars þetta: „Nú er algengt að fólk tengist fleiri löndum en einu og höfundur textans gleðst yfir því. Það getum við lært af þessu unga skáldi, ef okkur hefur sést yfir þann möguleika.“

  • Darin er fæddur árið 2015. Hann er í leikskólanum Sæborg í Reykjavík

 

Flokkur: 1. til 4. bekkur

Uppvakningavandræði – Dögun Rós Steinarsdóttir

Uppvakningavandræði er titill smásögu Dögunar Rósar Steinarsdóttur. Sagan fjallar um uppvakninga frá Þórshöfn sem gera vart við sig á Norðfirði. Uppvakningarnir eru fólk í álögum og það kemur í hlut söguhetjanna að bjarga þeim frá glötun.

  • Dögun Rós er í 2. bekk Grunnskólans á Þórshöfn

 

Flokkur: 5. til 7. bekkur

Gulu stígvélin – Ísabella Kristín Káradóttir

„Gagnsemi og gleði eru mikilvægir hornsteinar í lífi okkar,“ segir í umsögn dómnefndar um söguna Gulu stígvélin. Í sögunni segir frá gulum stígvélum sem söguhetjan vill ekkert af vita en líka frá skrautlegri húfu sem hún hefur dálæti á. Einföld saga sem leynir á sér þegar lesið er á milli línanna.

  • Ísabella Kristín er í 7. bekk Fossvogaskóla

 

Flokkur: 8. til 10. bekkur

Plokkfiskurinn og pitsan – Ragna María Sverrisdóttir

Plokkfiskurinn og pitsan er titill sögu Rögnu Maríu. „Sniðug saga um tímaflakk,“ segir í umsögn dómnefndar og þar segir jafnframt að höfundur hafi aflað sér góðra upplýsinga um liðna tíma. Smáatriðin standast hvort sem lýst er nútíð eða fortíð, segir jafnframt í umsögn.

  • Ragna María er í 10. bekk Hagaskóla

 

Flokkur: Framhaldsskólinn

Hver er ég eiginlega? – Dagbjört Ósk Jóhannsdóttir

„Þessi saga er yfirveguð og hörð árás á heimskulegar staðalímyndir sem oft eru framhaldsskólanemum erfiðar.“ Þetta kemur fram í umsögn dómnefndar um söguna Hver er ég eiginlega? eftir Dagbjörtu Ósk.

  • Dagbjört Ósk er í 3. bekk Menntaskólans á Ísafirði