Upptaka frá fundi frambjóðenda til formanns FG á netinu

Fréttir|17. janúar 2018

Fundurinn stóð í tvær stundir með góðri þátttöku fundargesta í sal.

Frambjóðendur til formanns Félags grunnskólakennara komu saman á opnum fundi í Gerðubergi mánudagskvöldið 15. janúar. Þar kynntu þeir sig og áherslur sínar í kosningabaráttunni. Fundurinn stóð í tvær stundir með góðri þátttöku fundargesta í sal. 

Upptaka af fundinum er hér. 

Frambjóðendur til formanns FG eru: 

  • Hjördís Albertsdóttir
  • Kjartan Ólafsson
  • Kristján Arnar Ingason
  • Rósa Ingvarsdóttir
  • Þorgerður Laufey Diðriksdóttir. 

Kynning frambjóðenda á vef KÍ er hér. 

Formannskjörið hefst klukkan 9.00 miðvikudaginn 17. janúar og lýkur klukkan 14 mánudaginn 22. janúar.