Upptaka af framboðsfundi grunnskólakennara

Fréttir|26. apríl 2022

Frambjóðendur til formanns FG komu saman á kappræðufundi 26. apríl 2022.

Fundur með frambjóðendum til formanns Félags grunnskólakennara fer fram í kvöld, þriðjudaginn 26. apríl. Fundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins, og hefst klukkan 20:00.

Fundinum verður streymt og hægt að horfa á hann í glugganum hér að neðan. 


Þrjú eru í framboði til formanns

  • Mjöll Matthíasdóttir, kennari við Þingeyjarskóla
  • Pétur Vilberg Georgsson, kennari við Brekkubæjarskóla
  • Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara

Fundarstjóri verður Þórhildur Þorkelsdóttir. Hægt verður að horfa á upptöku af fundinum þar til kosningu lýkur. 

Hægt verður að senda spurningar inn á fundinn með því að senda póst á utgafa@ki.is.

Atkvæðagreiðslan hefst klukkan 14 næsta mánudag, 2. maí, og lýkur klukkan 14, laugardaginn 7. maí.