Upptaka af framboðsfundi aðgengileg

Fréttir|1. desember 2021

Frambjóðendur til varaformanns KÍ skiptust á skoðunum í beinni útsendingu.

Frambjóðendur til varaformanns KÍ koma saman á kappræðufundi í gærkvöld. Fundurinn fór fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, og var í beinni útsendingu á netinu. Fundarstjórn var í höndum Eddu Hermannsdóttur. 

Upptaka af fundinum verður aðgengileg á netinu þar til kosningu lýkur. Smellið hér til að horfa.

Frambjóðendur til varaformanns eru átta talsins – en frambjóðandinn Guðjón Ragnar Jónasson framhaldsskólakennari dró sitt framboð til baka um kvöldmatarleytið í gær. 

Frambjóðendur í stafrófröð

  • Guðný Maja Riba, grunnskólakennari í Breiðholtsskóla
  • Hjördís B. Gestsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Langholtsskóla
  • Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar
  • Kristín Björnsdóttir, grunnskólakennari í Sunnulækjarskóla
  • Lára Guðrún Agnarsdóttir, grunnskólakennari í Austurbæjarskóla
  • Silja Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í Sjálandsskóla
  • Simon Cramer Larsen, framhaldsskólakennari í FS
  • Þórunn Sif Böðvarsdóttir, grunnskólakennari í Laugalækjarskóla

 

Mikilvægt að vita um varaformannskjörið 

  • Frambjóðendur kynna sig hér
  • Atkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 6. desember
  • Atkvæðagreiðslu lýkur mánudaginn 13. desember
  • Nýr varaformaður tekur við embætti á VIII þingi KÍ sem fram fer í byrjun apríl á næsta ári.