Uppskrift að velsældarkennara

Fréttir|21. nóvember 2023

Hugleiðingar og samantekt Önnu Pálu Stefánsdóttur kennara í kjölfar fyrirlestrar dr. Sue Roffey um jákvæða sálfræði og kennslu.

„Ég varð á dögunum þeirrar gæfu aðnjótandi að sitja kennslustund í jákvæðri menntun sem nemandi í jákvæðri sálfræði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Kennarinn, Sue Roffey, er sálfræðingur, rithöfundur og forstjóri samtakanna Growing Great Schools og einn helsti sérfræðingur jákvæðrar menntunar.

Mig langar hér til að stikla á stóru og segja frá því í stuttu máli hvað þessi breski snillingur kenndi okkur um jákvæða menntun, og þá einkum hlutverk kennara. Ég hef brennandi áhuga á viðfangsefninu þar sem ég er sjálf kennari í framhaldsskóla til 22ja ára og er alltaf opin fyrir fróðleik, umfjöllun og góðum ráðum um allt sem tengist námi og kennslu.

Ljóst er af öllu sem Roffey segir að óháð fagkennslu ætti kennarastéttin öll að gera sitt besta til að stuðla að velsæld og hamingju nemenda.

Kennarar eru áhrifavaldar

Hlutverk kennarans er óneitanlega mjög mikilvægt. Sem dæmi um það má nefna að í mörgum ævisögum tiltekur fólk kennara sem áhrifavalda í lífi sínu og jafnvel sem ástæðu þess að þau völdu sér tiltekna braut eða ævistarf. Kennarar eru fyrirmyndir margra, enda getur sérstök umhyggja kennara og hvatning haft mikil áhrif á líf fólks.

Orð eru ókeypis og litlu augnablikin geta skipt svo miklu máli í lífi ungrar manneskju. Þau geta hjálpað við að móta sjálfsmynd þeirra, eða eins og Einar Ben orðaði það: „eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt“.

Nemandi þarf að finna að hann tilheyri, að hann sé séður.

Ég hef sjálf reynslu af því í kennslunni að litlar, og við fyrstu sýn ómerkilegar, athugasemdir og samskipti hafa glatt og hvatt nemendur og stuðlað að því að þeim líði betur. Þetta hafa þau bæði sagt mér eða skrifað, eða ég heyrt út undan mér, bæði um mig og aðra kennara.

Gagnkvæmni mikilvæg

Nemandi þarf nefnilega að finna að hann tilheyri, að hann sé séður. Einfaldar leiðir fyrir kennara til að ná því fram eru eins og áður sagði að brosa, en einnig að sýna góðvild og virðingu í samskiptum jafnframt því að sýna áhuga og hlusta.

Kennari ætti líka að leitast við að ýta undir þessa hegðun hjá öllum nemendum sínum til að byggja upp jákvætt andrúmsloft og tilfinningalegt öryggi. Nauðsynlegt er að kennarar kynnist nemendum sínum lítillega til að byggja upp gagnkvæman skilning og samband. Þetta getur stundum verið erfitt í fjölbrautakerfi með 30 nemenda hópa, en við gerum öll okkar besta í hverri stöðu og eins og áður sagði þá þarf stundum ekki eitthvað stórkostlegt til heldur bara eitthvað smálegt.

Orð eru ókeypis og litlu augnablikin geta skipt svo miklu máli í lífi ungrarmanneskju

Sue dró saman nokkur góð atriði varðandi mannleg samskipti og það sem þau hafa í för með sér. Ef einstaklingi finnst hann vera metinn að verðleikum vinnur hann betur með öðru fólki og ef honum finnst vera hugsað vel um sig ýtir það undir samkennd og gagnkvæman skilning. Ef þú finnur fyrir virðingu þá sýnir þú frekar öðrum virðingu og gefur þeim bæði rými og áhuga. Ef nemandi finnur að hann sé hluti af heild þá eykst innri áhugahvöt og skuldbinding.

Húmorinn nauðsynlegur

En er þetta ekki voðalega mikil pressa á kennara? Þurfum við öll að vera rosalega fullkomin? Nefnilega alls ekki! Sue undirstrikar nauðsyn þess að taka sig ekki of alvarlega í kennarahlutverkinu.

Mikilvægt er að við höfum smá húmor fyrir sjálfum okkur.

Ef kennari gerir mistök er um að gera að hlæja að því, biðjast afsökunar og benda nemendum á að mistök feli einmitt í sér tækifæri til að læra af þeim. Ekki sé alvarlegt að gera mistök heldur mannlegt, og við kennarar gerum klárlega mannleg mistök en erum ekki fullkomnir einstaklingar sem svífum ofar skýjum í fílabeinsturnum.

Þegar kennarar taka sig ekki of alvarlega, heldur biðjast afsökunar á mistökum sínum og gangast við þeim, byggja þeir upp sjálfstraust hjá nemendum sínum þannig að ljóst er að til mikils er að vinna.

Nauðsynlegt er hafa gaman saman, að leika sér svolítið og jafnvel að fíflast stundum smávegis inn á milli „alvarlegri“ verkefna eða að gera leik úr verkefnunum þegar tækifæri gefst. Þetta held ég að við vitum öll vel. Ég veit það líka af eigin raun að flestum unglingum finnst alls ekki leiðinlegt að leika sér eða gera „barnalega“ hluti og markmiðið mitt er oft að fá nemendur til að gleyma því að þau séu að „læra“ í leik og skemmtilegheitum.

Að skemmta sér og hafa gaman í hópi minnkar streitu og ýtir undir tilfinninguna um að þú tilheyrir hópnum. Að líða vel hjálpar til við að leysa vandamál og finna skapandi lausnir. Það eru sem sagt engin geimvísindi að gagnlegt er að bæta leik inn í námið.

Merkimiðarnir varhugaverðir

Það sat lengi í mér að Sue minntist á að það skipti svo miklu máli hvernig talað væri um nemendur á kennarastofunni. Ég mundi þá eftir einni samstarfskonu sem tók aldrei þátt í kvartkórnum þegar ég og aðrir kennarar vorum frústreruð að deila sögum af einhverjum áhugalausum eða erfiðum nemendum. Ég var mjög hugsi yfir þessu og sendi henni skilaboð þar sem ég hrósaði henni fyrir þetta og sagði að ég myndi reyna að taka hana mér til fyrirmyndar í framtíðinni. Auðvitað þurfum við stundum að ræða málin og pústa yfir erfiðum samskiptum en mér finnst vert að hafa þetta í huga.

Í sambandi við þetta fór ég líka að hugsa um það þegar við kennararnir erum í byrjun annar að skoða hópalistana hvert hjá öðru og gefa nemendum „merkimiða“. Þessi er frábær, þessi er rosa löt og gerir ekki neitt, þessi er svolítið áhugalaus, þú ert ó/heppin með hóp o.s.frv.

Þetta er auðvitað alls ekki gott þegar kennari tekur við nýjum hópi og er strax búinn að mynda sér skoðanir á ákveðnum nemendum sem eru komnir með „merkimiða“, í staðinn fyrir að leyfa sínum skoðunum, sem eru stundum allt aðrar, um þau að koma fram með tíma og reynslu.

Ef einstaklingi finnst hann vera metinn að verðleikum vinnur hann betur með öðru fólki og ef honum finnst vera hugsað vel um sig ýtir það undir samkennd og gagnkvæman skilning. Ef nemandi finnur að hann sé hluti af heild þá eykst innri áhugahvöt og skuldbinding.

Hamingjusami kennarinn

Í fyrirlestri sínum setti Sue fram lista með eiginleikum kennara sem eru ánægðir og gengur mjög vel í starfi. Þarna komu fram mörg atriði sem við mátti búast. Kennarinn er ábyrgur, lausnamiðaður, sveigjanlegur, þrautseigur og með góða samskiptahæfileika. Óhefðbundnara var að þarna kom fram að þessir kennarar hefðu skopskyn og framtíðarsýn og að starf kennarans og líf þyrfti að hafa einhvern tilgang og merkingu.

Einnig er mikilvægt að kennarinn hafi tækifæri til að leita sér hjálpar og fá aðstoð ef þess er þörf. Þetta er eflaust ekki alltaf raunin og stundum mögulega ekki skýrt við hvern eigi að ræða ef vandamál koma upp. Til viðbótar við það erum við sum þannig gerð að okkur finnst við eiga að vita allt sjálf og veigrum okkur því við að leita hjálpar, þar sem það gæti mögulega verið túlkað sem veikleikamerki eða að við ráðum ekki nógu vel við starfið okkar.

Að þróa jákvætt andrúmsloft og velsæld starfsfólks hefur gífurleg áhrif. Mikilvægt er að hlúa vel að kennurum því þeirra velferð og starfsánægja er nauðsynleg til að nemendur geti upplifað öryggi, þeim liðið vel og þar af leiðandi gengið vel að læra.

Þegar kennarar finna að þau eru metin að verðleikum og valdefld eru þau mun líklegri til að sýna nemendum þolinmæði, skilning og hluttekningu. Þau eru einnig mun líklegri til að deila og vinna með öðrum kennurum og starfsfólki skólans. Þetta finnst mér vera stórkostleg skilaboð til ráðamanna og stjórnenda. Enda þótt þetta segi sig sjálft endurspeglast það eflaust ekki alltaf í okkar raunveruleika.

Dómínóáhrif hamingjuvírussins

Að hafa velsæld og góð samskipti að leiðarljósi í skólastofunni, vera mannleg og taka sig mátulega alvarlega hefur góð áhrif á námsumhverfi, dregur úr streitu og ýtir undir skilvirkni og starfsgleði allra hlutaðeigandi. Fókusinn þarf að vera á styrkleika, lausnir og að hafa gaman saman. Við þurfum að beina kastljósinu að hinum félagslega jákvæðu gildum góðvild og tillitssemi, ásamt því að reyna að tryggja að öllum finnist þeir hluti af heildinni og skipta máli.

Talað er um dómínó-áhrif af því þegar kennari er hamingjusamur í starfi. Það smitast út til samkennara og nemenda og byggir einnig upp góð samskipti og ánægju innan nemendahópsins. Tilfinningar eru vissulega smitandi og þessi hamingjuvírus þarfnast alls engra smitvarna heldur væri best að hann dreifðist sem víðast út í allt þetta fjölbreytta og skemmtilega vistkerfi sem skólasamfélagið er.“

Anna Pála Stefánsdóttir, spænskukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð og nemi í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands skrifar. Greinin er byggð á fyrirlestri Sue Roffey sem haldinn var í EHÍ fimmtudaginn 19. janúar 2023.