Uppreisn gegn ranglæti

Fréttir|27. október 2014

Kæri félagsmaður!

Því miður er það svo að ýmislegt í umhverfi tónlistarskóla vekur upp þá ónotatilfinningu að samningsleysi okkar tengist utanaðkomandi þáttum og málum. Þær raddir gerast æ háværari sem segja að við séum huganlega notuð sem bitbein stjórnmálamanna í tilteknu máli auk þess sem verkfall þessa „slagkrafts-litla hóps“ sé kærkomin búbót í lok fjárhagsárs.

Framgangan er í það minnsta illskiljanleg og tónlistarkennarar og millistjórnendur í tónlistarskólum eru í verkfalli:

  • þrátt fyrir að „jafnrétti í launasetningu“ sé eitt af meginsamningsmarkmiðum sveitarfélaga,
  • þrátt fyrir orð ráðamanna um að það sé sanngjarnt og eðlilegt að launakjör tónlistarkennara séu sambærileg launum annarra kennara,
  • þrátt fyrir aðkomu samningsaðila að vettvangi sem hefur það að markmiði að bæta vinnulag við kjarasamningsgerð,
  • þrátt fyrir áherslu á samstöðuhlutverk stéttarfélaga, þ.e. hlutverk þeirra við að vinna að sameiginlegum hagsmunum félagsmanna í samvinnu við stjórnvöld,
  • þrátt fyrir að jafnrétti sé einkennisorð okkar þjóðfélags og hluti af norrænni sjálfsímynd,
  • þrátt fyrir aukna áherslu á samráð og samræðustjórnmál í okkar lýðræðisþjóðfélagi,
  • þrátt fyrir að búið sé að semja við öll önnur aðildarfélög Kennarasambands Íslands, eins og hins sama stéttarfélags kennara og stjórnenda í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum.

Undanfarin áratug hefur staða tónlistarskólakerfisins okkar verið í hálfgerðu tómarúmi. Verulega hefur verið gengið á innviði þess og það er mat Félags tónlistarskólakennara að nú sé sótt að stoðum kerfisins úr ýmsum áttum.

Það er hryggilegt að þurfa að játa það fyrir félagsmönnum að í dag, á árinu 2014 – á öld hinna skapandi greina – þá virðist samfélagið ekki bjóða upp á aðrar nálganir eða leiðir til úrlausna en þær sömu og þegar fyrstu stéttarfélögin voru stofnuð á Íslandi seint á 19. öld.

Þessi veruleiki gerir mig hins vegar enn sannfærðari um að tónlistarmenntun hafi aldrei verið mikilvægari en einmitt í dag.

Sigrún Grendal, formaður Félags tónlistarskólakennara