Upplýsingar til félagsmanna vegna skattframtals 2020

Hér eru tilgreind ýmis praktísk atriði varðandi skattframtal 2020 vegna launa ársins 2019.
Ábendingar vegna greiðslna úr endurmenntunarsjóðum KÍ
Vísindasjóður Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla, Verkefna- og námsstyrkjasjóður Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands (Vonarsjóður), Starfsmenntunarsjóður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Vísindasjóður Félags framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum.
Launamiðar eru ekki sendir út til félagsmanna KÍ í almennum pósti, þeir birtast eingöngu í heimabanka viðkomandi. Fjárhæðin á launamiðanum v/greiðslna frá KÍ er forskráð á tekjusíðu skattframtals 2020 (vegna 2019) undir lið 2.3 við línuna „Styrkir til náms, rannsókna og vísindastarfa (heildarfjárhæð)“ í reit 131 (sjá nánar á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali yfir allar forskráðar greiðslur).
Athygli er vakin á því að fjárhæðir sem færa má til frádráttar skal skrá undir lið 2.6 „Frádráttur“ í reit 149. Þær upphæðir eru ekki forskráðar. Sjá nánar í leiðbeiningarbæklingi RSK fyrir einstaklinga á www.rsk.is.
Heimilt er að draga frá kostnað á móti endurmenntunarstyrk. Er því skráður útlagður kostnaður (t.d. námskeiðskostnaður) á móti styrkupphæð undir lið 2.6 „Frádráttur“ í línunni „Frádráttur á móti náms-, rannsóknar- og vísindastyrkjum“ í reit 149. Þegar smellt er á „Færa frádrátt“ opnast yfirlit þar sem félagsmenn geta gert grein fyrir kostnaði á móti styrk.
Að öðru leyti er framteljendum bent á leiðbeiningar um útfyllingu skattframtals einstaklinga.
Styrkir úr sjúkrasjóði KÍ
Allir styrkir sjúkrasjóðs, nema dánarbætur KÍ, teljast skatt- og staðgreiðsluskyldar tekjur. Félagsmenn hafa nú þegar greitt skatt af þessum styrkjum. Ekki eru sendir út launamiðar til félagsmanna í almennum pósti eins og áður sagði og birtast þeir eingöngu í heimabanka. Fjárhæðin á launamiðanum er forskráð á tekjusíðu skattframtals 2020 (v. 2019) undir lið 2.3 „Annað, hvað?“ í reit 96 og á þetta við um sjúkradagpeninga og aðra styrki sjúkrasjóðs.
Dánarbætur færast undir lið 2.9 „Skattfrjálsar tekjur“ C í reit 73 á framtalinu (sjá nánar á sundurliðunarblaði sem fylgir framtali yfir allar forskráðar greiðslur).
Afdregin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum og öðrum styrkjum sjúkrasjóðs er forskráð á skattframtalið undir lið 2.10 „Staðgreiðsla af tekjum (öðrum en fjármagnstekjum“) í reit 296.
Styrkir úr sjúkrasjóði KÍ – frádráttarbærir samkvæmt skattamati RSK
Vert er að benda á leiðbeiningar frá Ríkisskattstjóra vegna frádráttarheimildar á styrkjum vegna heilsuræktar.