Upplýsingar sem koma að gagni við gerð skattframtalsins

Fréttir|9. mars 2024

Opnað hefur verið fyrir skil á skattframtali fyrir árið 2023. Hér er farið yfir helstu atriði varðandi framtalsskil, eins og hvað er forskráð af Kennarasambandinu og hvað ekki.

Að vanda eru upplýsingar frá Kennarasambandinu forskráðar í framtalið. Þetta ár var því bætt við að forskrá kostnað á móti þeim endurmenntunarstyrkjum þar sem kostnaðarreikninga er krafist. 

Við bendum á að félagsfólk getur flett upp á styrkúthlutunum ársins 2023 á Mínum síðum.

Endurmenntunarsjóðir

Vísindasjóður FL og FSL

  • Eftirtaldir styrkir eru með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • Einstaklingsstyrkur
    • Skólaheimsóknastyrkir
    • E-deild, einstaklingsbundinn styrktarsjóður
  • Eftirtaldir styrkir eru ekki með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • Loknar ECTS ein. í framhaldsnámi
    • Styrkur til doktorsnema

Vonarsjóður FG og SÍ

  • Eftirtaldir styrkir eru með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • A - hluti: Námskeið
    • C - hluti: Einstaklingsbundinn styrktarsjóður
  • Eftirtaldir styrkir eru ekki með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • B-hluti: Loknar ECTS einingar

Vísindasjóður FF og FS

  • Eftirtaldir styrkir eru með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • Skólaheimsókn/kynnisferð
    • Einstaklingsstyrkur, námskeið/ráðstefna/sýning
    • Einstaklingsstyrkur - skólagjöld
    • A-deild
  • Eftirtaldir styrkir eru ekki með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • Einstaklingsstyrkur - ECTS einingar
    • Styrkur vegna námsorlofs

Starfsmenntunarsjóður FT

  • Eftirtaldir styrkir eru með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • A deild: Námskeið
    • C deild: Hópferðir tónlistarskólakennara
    • E deild: Einstaklingsbundinn styrktarsjóður
  • Eftirtaldir styrkir eru ekki með forskráðan kostnað í frádrátt:
    • B deild: Umsókn vegna lokagreiðslu
    • D deild: Loknar ECTS ein. í framhaldsnámi

Aðrir sjóðir

  • Aðrir endurmenntunar- og rannsóknarsjóðir eru ekki með forskráðan kostnað í frádrátt. Það eru:
    • Starfsþróunarsjóður annarra háskólamenntaðra í FL
    • Fræðslu- og kynningarsjóður FG
    • Rannsóknasjóður KÍ

Ef félagsfólk hefur sannanlega reikninga fyrir kostnaði vegna styrkja sem hér eru nefndir í neðri hluta undir hverjum sjóði (s.s. þar sem frádráttur er ekki forskráður), þarf félagsfólk að færa kostnaðinn í viðeigandi reit í framtalinu. Það er, á tekjusíðu viðkomandi, þar sem smellt er á Færa frádrátt við reit 149:

Kostnaðurinn er skráður í viðeigandi linu hér:

Með þessu móti kemst félagsfólk hjá því að greiða skatt af styrkjum sem dekka kostnað vegna endurmenntunar.

Sjúkrasjóður

Styrkir úr Sjúkrasjóði KÍ, fyrir utan dánarbætur, eru skattskyldir og staðgreiðsla var dregin af greiðslunum við útgreiðslu. Styrkirnir eru forskráðir og staðgreiðslan sömuleiðis. Þar sem skattayfirvöld samþykkja ekki frádrátt frá styrkjum Sjúkrasjóðs er ekki í boði að skrá slíkt. Félagsfólk þarf því ekki að skrá neitt varðandi styrki úr sjúkrasjóði í framtalinu.

Sjúkradagpeningar eru skráðir sem styrkur vegna launataps og skattur var staðgreiddur. Þessar upplýsingar eru einnig forskráðar í framtalið og félagsfólk sem þegið hefur sjúkradagpeninga þarf því heldur ekki skrá neitt í framtalið. Staðgreiðslan var miðuð við 2. skattþrep sem ætti nokkurn veginn að stemma hjá þorra félagsfólks.

Störf í þágu sambandsins og/eða aðildarfélaganna

Fulltrúar í nefndum og ráðum sem fengið hafa nefndarlaun frá KÍ eru launþegar hjá sambandinu. Tekjur hafa verið forskráðar í launalið framtalsins og staðgreiddur skattur sömuleiðis. Fulltrúarnir þurfa því ekki að skrá neinar viðbótarupplýsingar í skattframtalið.