Upplýsingafundir i dag vegna stöðu kjaraviðræðna

Fréttir|22. október 2024

Tveir upplýsingafundir fyrir félagsfólk vegna stöðu kjaraviðræðna og fyrirhugaðra verkfallsaðgerða fara fram í dag. Annars vegar er fundað á Teams klukkan 14 í dag, hins vegar klukkan 17.

Samhæfingarstjórn Kennarasambandsins boðar til upplýsingafunda með félagsfólki vegna stöðu kjaraviðræðna og verkfallsaðgerða sem hefjast 29. október í níu skólum og 11. nóvember í þeim tíunda, hafi samningar ekki náðst.

Fundirnir, sem fara fram í streymi, eru ætlaðir öllu félagsfólki Kennarasambands Íslands og aðildarfélaga þess, þvert á skólastig og -gerðir. Hægt er að velja á milli tveggja tímasetninga.

Farið verður yfir stöðu mála í kjaraviðræðum KÍ við samninganefndir sveitarfélaga og ríkis. Fundarstjórn verður í höndum Jónínu Hauksdóttur, varaformanns KÍ, og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, fer yfir samningamálin.

Félagsfólk er hvatt til þess að nýta sér fundina og vera upplýst um gang mála. Hægt er að kynna sér málin betur á hér.