Uppfærðar leiðbeiningar vegna COVID-19

Fréttir|27. október 2020

Spurt og svarað um skólastarf á neyðarstigi vegna COVID-19.

Hvaða sóttvarnarráðstafanir gilda í tónlistarskólum? Hvað gerist ef upp kemur smit í tónlistarskóla? Mega tónlistarskólakennarar fara á milli skóla til að kenna?

Þessum spurningum og fjölmörgum fleiri er svarað í uppfærðum leiðbeiningum menntamálaráðuneytisins um skólastarf á neyðarstigi vegna COVID-19. 

Uppfærðar leiðbeiningar um skólastarf í leik-, grunn- og tónlistarskólum voru birtar á vef stjórnarráðsins í gær. Leiðbeiningarnar byggjast á reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar, nr. 958 og breytingum þar að lútandi. Vert er að taka fram að strangari aðgerðir gilda tímabundið á höfuðborgarsvæðinu af þeirri ástæðu að þar er faraldurinn útbreiddastur. 

Leiðbeiningar ráðuneytisins dagsettar 26. október 2020

Frekari upplýsingar er að finna á vef stjórnarráðsins.

Þá minnum við á Spurt & svarað hér á vef KÍ.