Uppeldisráðgjafi, félagsráðgjafi eða kennari?

Fréttir|11. maí 2015

Elísabet Gunnarsdóttir grunnskólakennari skrifar

Vandaðir og framúrskarandi grunnskólakennarar starfa í öllum skólum landsins. Starf okkar er margþætt og kemur inn á flestar mannlegar hliðar. Þegar unnið er með börnum og ungmennum er fátt sem kennari þarf ekki að vera inni í. Eða hvað?

Ég hef velt því fyrir mér hvort kennarar, sem eru með menntun til að kenna nemendum grunnskóla, séu komnir í það hlutverk að vera inni í nánast öllu sem að nemendum snýr. Mikilvægi þess að vera vel inni í málum nemenda er án vafa gagnlegt en ég spyr mig hvort það verði til þess að kennarar taki of miklar skyldur á sínar herðar? Takast kennarar á við þætti sem eiga frekar heima hjá félagsþjónustu eða öðrum fagaðilum?

Við höfum ekki farið varhluta af því að hér varð efnahagshrun og í kjölfar slíks aukast félagslegir erfiðleikar í samfélaginu. Áhrif hrunsins á nemendur koma ekki endilega fram strax heldur birtast þau í hegðun og líðan nemenda þegar fram í sækir. Þetta hefur bein áhrif á starf kennarans; líðan og hegðun nemenda kemur fram í daglegum athöfnum.

Ég velti líka fyrir mér hvort skilgreina þurfi kennarastarfið að nýju og nota mætti vinnumat kennara til að skerpa á hlutverki kennara og því sem ekki fellur þar undir?

Vörumst að taka á okkur ábyrgð og skyldur sem ekki eiga heima hjá okkur grunnskólakennurum. Að taka að sér allt sem óskað er eftir er góð leið til að brenna út í starfi. Hugum að okkar hlutverki.