Uppbygging sjálfsaga
Kennarasambandið vekur athygli á tveimur námskeiðum félagsins Uppbygging sjálfsaga sem haldin verða næsta haust:
Uppeldi til ábyrgðar – uppbygging sjálfsaga I
Námskeiðið verður haldið dagana 8. og 9. ágúst í Álftanesskóla. Leiðbeinendur á námskeiðinu verða Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Hildur Karlsdóttir. Báðar hafa þær réttindi frá Diane Gossen til að kenna þessi fræði og langa reynslu í að nýta þessar starfsaðferðir í skólastarfi og uppeldi. Skráning fer fram á netfanginu alftanesskoli@alftanesskoli.is
Nánari upplýsingar má finna hér:
Uppbygging í Boston
Félagið Uppbygging sjálfsaga í samvinnu við hina heimsfrægu Judy Anderson mun standa fyrir tveggja daga námskeiðum í Boston dagana 22. til 26. nóvember.
Frábært tækifæri fyrir alla sem vilja kynna sér Uppeldi til ábyrgðar - Uppbyggingu sjálfsaga nánar í góðum hópi. Val um tvö mismunandi námskeið
Námskeiðin fara fram á ensku
Íslensk fararstjórn
Flogið verður út seinni partinn á þriðjudegi og komið heima að morgni sunnudagsins 27. nóvember. Gist verður á Hilton Back Bay í Boston í fjórar nætur. Skráning fer fram á skraning@sandgerdisskoli.is