Uppbygging ábyrgðar og sjálfsaga 20 ára

Fréttir|27. ágúst 2020

Á þessum tuttugu árum hefur starfsfólk í mörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum þróað, innleitt og nýtt sér aðferðir sem kenndar eru við uppbyggingarstefnuna.

Félag áhugafólks um Uppbyggingu ábyrgðar og sjálfsaga fagnaði 20 ára afmæli nú í sumar. Á þessum tuttugu árum hefur starfsfólk í mörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum þróað, innleitt og nýtt sér aðferðir sem kenndar eru við uppbyggingarstefnuna (Restitution – Self discipline).

Því miður var ekki hægt að halda afmælisráðstefnu eins og til stóð vegna COVID-19 en þar stóð til að frumsýna nýtt efni sem nú er aðgengilegt á vef félagsins. Um er að ræða tvo efnisflokka:

  • Grunnþarfirnar fimm og þarfahringurinn á fimm tungumálum sem hægt er að nálgast á A3 og A4. Einnig fylgir með orðalisti / orðabók fyrir þarfahringinn.
  • Völundarhringinn eða „Vandamálið leyst í völundarhringnum“ á fjórum tungumálum með kennsluleiðbeiningum. Hægt er að sækja Völundarhringinn á A3 og A4 en einnig er hægt að stækka hann á dúk, teppi, skólalóðina eða á hvern þann hátt sem hentar vinnuumhverfinu og aðstæðum hverju sinni.

Nánar um Félag áhugafólks um Uppbyggingu ábyrgðar og sjálfsaga

Félag áhugafólks um Uppbyggingu ábyrgðar og sjálfsaga var stofnað árið 2008. Á undanförnum 20 árum hefur starfsfólk í mörgum leik-, grunn- og framhaldsskólum verið að þróa, innleiða og nýta sér aðferðir sem kenndar eru við uppbyggingarstefnuna (Restitution – Self discipline).

Upphafsmaður þessarar nálgunar er Diane Gossen sem hefur starfsstöð í Kanada en starfar víða um heim. Fyrsta formlega námskeiðið hérlendis með Diane Gossen var haldið í Foldaskóla í Grafarvogi haustið 2000.

Uppbygging ábyrgðar og sjálfsaga miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga og þjálfa þau í að ræða um tilfinningar og átta sig á þörfum sínum. Vinnuaðferðunum er einnig ætlað að styðja starfsmenn skóla við að móta sér skýra stefnu varðandi samskipti og agamál. Öðru fremur er um að ræða aðferðir við að kenna sjálfsstjórn og sjálfsaga og styrkja einstaklinga í því að læra af mistökum sínum. Hugmyndafræðin hefur áhrif á kennsluhætti, stjórnunarhætti, áherslur í lífsleiknikennslu og ekki síst á meðferð agamála.

Hugmyndafræði Uppbyggingar ábyrgðar og sjálfsaga byggist á því að einstaklingurinn geti tekið sjálfstæðar, siðferðilegar ákvarðanir varðandi eigin hegðun þegar hann er laus undan skömmum, hótunum, sektarkennd eða væntingum og loforðum um umbun og að hann fái tækifæri til að meta lífsgildi sín. Markmiðið er að styrkja einstaklinginn í að vera sá sem hann vill vera með hliðsjón af eigin sannfæringu frekar en að stjórnast út frá geðþótta annarra. Hvernig viljum við vera og hvað þurfum við að gera til að ná takmarki okkar? Diane Gossen hefur unnið með kennurum víða um heim, við að þróa hagnýtar leiðir fyrir skóla sem miða að því að ná þessu marki. Hinir fullorðnu byrja á sjálfum sér með það að markmiði að skapa skólabrag sem einkennist af samheldni og umhyggju.

Lögð er áhersla á að starfsmenn, foreldrar og nemendur skóla sammælist um skýrar reglur um óásættanlega hegðun og þrói samstilltar leiðir til að fylgja þeim eftir. Skýr mörk skapa það öryggi og traust sem er nauðsynlegt skólasamfélaginu og til að styðja við þau lífsgildi sem hver bekkur, skólinn og skólasamfélagið setur saman í félagslegan sáttmála.

 

Sveinbjörn Markús Njálsson fv. skólastjóri og gjaldkeri Uppbyggingar sjálfsaga