Unnið að þróun og útfærslu starfsþróunarvegabréfs

Kennarasamband Íslands vinnur nú að þróun og útfærslu svokallaðra starfsþróunarvegabréfa. Kennararáð hefur hvatt til þessa. Hugmyndin er að starfsþróunarvegabréf verði aðgengileg fyrir alla félagsmenn KÍ og þau verði að finna á læstu svæði á Mínum síðum KÍ.
Starfsþróunarvegabréf (Professional Learning Passport-PLP) eiga rætur sínar að rekja til Skotlands og öflugrar starfsemi kennararáðs þar sem hefur starfað allt frá árinu 1967. Starfsþróunarvegabréfin voru þróuð sem rafræn vefsvæði eða verkfæri fyrir kennara til að styðja við starfsþróun sína. Seinna hafa þau verið notuð í fleiri löndum, t.a.m. Englandi, Írlandi, Wales og Ástralíu.
Bréfin eru nokkurs konar skrá sem kennarar og skólastjórnendur nota til að ígrunda og halda utan um starfsþróun sína og skrá formlega og óformlega starfsþróun. Bréfin voru þróuð með það að markmiði að bæta og þróa skólafólk í starfi og draga athygli að nauðsyn þess að halda sér við í starfi. Starfsþróunarskráin er á forsendum kennara og trúnaðarmál hans sem notar hana á sinn hátt og hún fylgir honum eins lengi og hann óskar.
Þar sem kennararáð sjá um starfsþróunarvegabréfin eru þau tengd hæfniviðmiðum og framhaldsmenntun. Kennari getur þá skoðað hverju hann hefur bætt við sig og hvar vantar upp á og tengt við hæfnirammana og kortlagt feril sinn.
Skoskir skólastjórnendur telja starfsþróunarvegabréf bæta skilning almennings á mikilvægu framlagi skólafólks til menntunar, viðhalda trausti almennings til kennara og skóla og stuðla að faglegri þróun, faglegri meðvitund skólafólks og gæðum menntunar í skólum.
Í starfsþróunarvegabréf er hægt að skrá bæði formlega og óformlega starfsþróun. Hvað varðar þá óformlegu eru spurningar til að hugleiða og möguleikar á að skrá eigin hugleiðingar og ígrundun. Einnig er hægt að setja í skrána vel heppnaða útfærslu byggða á starfsþróun, svo sem texta- og myndbrot. Erlendum starfsþróunarskrám fylgir einnig aðgangur að rannsóknarbókasafni með greinum, útdráttum, rafrænum bókum, tilvitnunum og gögnum úr rannsóknum.
Dæmi um starfsþróun
- Skipulegt háskólanám
- Einstök háskólanámskeið
- Lengri og styttri námskeið, t.d. í Menntafléttu eða sumarnámskeið faggreinafélaga
- Starfendarannsóknir