Unnið að nýju vinnumati fyrir framhaldsskólakennara

Fréttir|3. september 2014

Vinna við nýtt mat á vinnu kennara í framhaldsskólum er komin á fullt skrið en samkvæmt gildandi kjarasamningi framhaldsskóla skal unnið að nýju vinnumati fyrir kennslu allra námsáfanga í framhaldsskólum landsins. Vinnunni stýrir verkefnisstjórn sem í sitja fulltrúar menntamálaráðuneytisins, Kennarasambands Íslands og fjármálaráðuneytisins. Verkefnisstjórnin tók til starfa í maí en vinnumatsnefndir voru skipaðar nýlega. Þær eru fimm talsins og byggir skipting þeirra á faggreinum og fagsviðum.

Fyrsti sameiginlegi fundur verkefnisstjórnar og vinnumatsnefnda sem vinna munu saman að nýju vinnumatskerfi fyrir framhaldsskólakennara fór fram í húsnæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins fimmtudaginn 28. ágúst. Í hverri vinnumatsnefnd sitja fjórir fulltrúar, tveir skipaðir af Kennarasambandi Íslands og tveir af menntamálaráðuneytinu.

Hópurinn mun vinna að undirbúningi vinnumats og gerð sýnidæma undir stjórn verkefnisstjórnar samkvæmt 7. grein kjarasamnings ríkisins við Kennarasamband Íslands frá 4. apríl 2014. Stefnt er að því að meginútfærsla vinnumatsins verði tilbúin 20. janúar á næsta ári. Félagsmenn Kennarasambands Íslands í framhaldsskólum munu síðan greiða atkvæði um upptöku nýs vinnumats á kennsluþætti kennarastarfsins í febrúar á næsta ári. Verði nýtt vinnumat samþykkt geta framhaldsskólar innleitt það frá og með upphafi skólaársins 2015-16.