Unnið að gerð leiðarvísis um vinnumat grunnskólakennara

Fréttir|9. september 2014

Verkefnisstjórn sem hefur umsjón með gerð leiðarvísis um vinnumat kennara hefur komið saman sex sinnum á undangengnum vikum.Í kjarasamningi Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga er að finna nýjung sem felst í skilgreiningu á nýju vinnumati grunnskólakennara og nær yfir skipulag daglegrar vinnu í grunnskólum. Tilgangur leiðarvísis að nýju vinnumati er einkum að einfalda ákvæði samningsins og stuðla þannig að sveigjanleika í starfsháttum, samstarfi og samábyrgð kennara og skólastjórnenda.

Verkefnisstjórnin hefur opnað vefsíðuna vinnumat.is og þar er hægt að lesa fundargerðir stjórnarinnar og jafnframt senda inn spurningar um hvaðeina sem viðkemur vinnumatinu.

Félagar í FG eru hvattir til að kynna sér vefsiðuna og hika ekki við að senda inn ábendingar og fyrirspurnir.

Mikilvægar dagsetningar

  • Verkefnisstjórn hóf störf 12. júní 2014 og starfar út gildistíma kjarasamnings 31. desember 2016.
  • Útfærsla verkefnisstjórnar á drögum að leiðarvísi um vinnumat skal liggja fyrir í síðasta lagi 1. nóvember 2014. Kynningar- og umsagnarferli vegna vinnumatsins stendur fram til 10. janúar 2015 og hafa þá skólastjórnendur, kennarar og sveitastjórnir kost á að kynna sér hana og koma með athugasemdir.
  • Verkefnisstjórn skilar lokaútgáfu leiðarvísisins til afgreiðslu samningsaðila eigi síðar en 15. febrúar 2015 og leggja undir atkvæði samningsaðila 20. febrúar 2015 í síðasta lagi.
  • Niðurstaða atkvæðagreiðslu skal liggja fyrir eigi síðar en 1. mars 2015.