Ungum kennurum fækkar
OECD birti í vikunni niðurstöður alþjóðlegrar rannsóknar á viðhorfum og aðstæðum kennara og skólastjórnenda í aðildarríkjunum. Í niðurstöðum um íslenska kennara í unglingadeildum grunnskóla kemur meðal annars fram að konur eru þar 71,9% kennara en þær voru 68% þeirra árið 2008. Þessi þróun er almenn í þeim löndum sem tóku þátt í könnuninni bæði árin. Kennarar yngri en þrítugir voru 13% árið 2008 en nú eru þeir aðeins rúm 6%. Þátttaka kennara í einhvers konar starfsþróunarverkefni hefur aukist frá 2008, en núna segjast 91% kennara hafa tekið þátt sem er yfir TALIS-meðaltalinu. Einnig vilja kennarar fá meiri þekkingu í notkun upplýsinga- og samskiptatækni við kennslu. Flestir kennarar njóta þess að gegna starfi sínu, engu að síður finnst þeim þeir njóta lítils stuðnings og ekki vera metnir að verðleikum.
TALIS er eina alþjóðlega rannsóknin þar sem sjónum er beint að vinnuaðstæðum kennara og námsumhverfi í skólum. Tilgangurinn er að afla áreiðanlegra og samanburðarhæfra gagna sem geta nýst þátttökulöndunum við að móta stefnu um menntun og starfsþróun kennarastéttarinnar. Fyrsta rannsókn af þessu tagi var gerð árið 2008 og þá tóku þátt hér á landi skólastjórar og kennarar í unglingadeildum grunnskóla og árið 2013 var hún líka lögð fyrir kennara í framhaldsskólum.
TALIS rannsakar þær aðferðir sem eru notaðar við að veita kennurum endurgjöf í starfi og að hvaða leyti og hvernig komið er til móts við þarfir kennara fyrir starfsþróun. Rannsóknin varpar ljósi á viðhorf kennara til kennslu og þeirra kennsluhátta sem þeir tileinka sér í kennslu. TALIS fjallar líka um hlutverk skólastjórnenda og þann stuðning sem þeir veita kennurum, sem og að beina sjónum að ýmsum þáttum sem geta haft áhrif á starfsánægju kennara og sjálfstraust.
Námsmatsstofnun kynnti fyrstu íslensku niðurstöðurnar í gær, 26. júní, um viðhorf kennara og skólastjórnenda í grunnskólum, en framhaldsskólahluti rannsóknarinnar verður kynntur í haust.
OECD hefur tekið saman skýrslu fyrir kennara um niðurstöðurnar.
Niðurstöður TALIS 2013 eru mikilvægt efni í skólamálastarfi KÍ og aðildarfélaganna.