Undirritun samkomulags um nýtt lífeyriskerfi mótmælt
Kennarasambandi Íslands hafa borist formlega eftirfarandi ályktanir frá kennarafélögum þar sem undirritun samkomulags um nýtt lífeyriskerfi er mótmælt.
Skrifað var undirsamkomulagið, sem er á milli KÍ, BHM og BSRB annars vegar og ríkis og sveitafélaga hins vegar 19. september síðastliðinn. Með samkomulaginu er stigið veigamikið skref í þá átt að launafólk hér á landi, jafnt hjá hinu opinbera sem á almennum markaði, njóti sambærilegra lífeyrisréttinda í framtíðinni. Á sama tíma eru núverandi lífeyrisréttindi félagsmanna tryggð. Athugið: Fleiri ályktanir verða birtar hér þegar þær berast.
Ályktun kennara í Varmárskóla, 14. október 2016:
Kennarar í Varmárskóla taka undir með öðrum skólum og mótmæla eindregið undirritun samkomulags um samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Kennarar skólans telja sig óbundna af undirrituninni, enda fer hún gegn ályktun sem gerð var á 6. þingi Kennarasambands Íslands sem haldið var 1.-4.apríl 2014.
Samkvæmt þessu samkomulagi verða lífeyrisréttindi nýrra starfsmanna skert, starfsævi lengd og ríkisábyrgð sjóðsins afnumin. Enn er óséð hvernig laun verða jöfnuð á við almenna markaðinn og ekki nein trygging fyrir því að það verði gert á næstunni. Það er því ljóst að með samkomulaginu skerðast kjör kennara enn frekar og er slíkt óverjandi eins og kjaramál kennara standa í dag.
Kennarar Varmárskóla
Ályktun kennara í Smáraskóla 29. september 2016:
„Við kennarar í Smáraskóla í Kópavogi viljum taka undir með öðrum kennurum þar sem við mótmælum undirritun samkomulags um samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Við teljum að með undirritun þess hafi forysta KÍ farið út fyrir umboð sitt. Kennarar skólans telja sig óbundna af undirrituninni, enda fer hún gegn ályktun sem gerð var á 6. þingi Kennarasambands Íslands sem haldið var 1.- 4. apríl 2014.
Samkvæmt samkomulaginu þykir ljóst að framtíðarlífeyrisréttindi nýrra starfsmanna verði skert, starfsævin lengd og ábyrgð vinnuveitanda á Lífeyrirssjóði opinberra starfsmanna afnumin. Þetta er gert án þess að niðurstaða hafi fengist um hvað komi í staðinn og á hvern hátt laun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins verði jöfnuð.
Ein af grunnforsendum jöfnunar lífeyrirsréttinda er að launakjör á milli markaða verði á sama tíma jöfnuð en slíkt er alls ekki tryggt. Með samkomulaginu er ljóst að kjör kennara versni en þau þykja ekki góð fyrir. Slíkt er óverjandi með öllu við þær aðstæður sem nú eru uppi í kjaramálum kennara.
Fyrir hönd kennara í Smáraskóla, Björn Karlsson, trúnaðarmaður Smáraskóla
Ályktun kennara í Fellaskóla – 26. sepember
„Kennarar í Fellaskóla, Reykjavík, taka undir með öðrum skólum og mótmæla eindregið undirritun samkomulags um samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Kennarar skólans telja sig óbundna af undirrituninni, enda fer hún gegn ályktun sem gerð var á 6. þingi Kennarasambands Íslands sem haldið var 1.-4. apríl 2014.
Nú liggur fyrir að lífeyrisréttindi nýrra starfsmanna verða skv. samkomulaginu skert, starfsævin lengd og ríkisisábyrgð sjóðsins afnumin þó enn sé óséð hvernig laun verða jöfnuð á við almenna markaðinn og engin trygging fyrir því að slíkt gangi eftir á næstunni. Það er því ljóst að með samkomulaginu eru kjör kennara, sem slæm eru fyrir, gerð enn verri. Slíkt er óverjandi með öllu við þær aðstæður sem nú eru uppi í kjaramálum kennara.“
Hulda Gunnarsdóttir, trúnaðarmaður kennara í Fellaskóla
Ályktun kennarafundar í Árbæjarskóla – 21. september
„Kennarar í Árbæjarskóla lýsa furðu sinni á að formaður KÍ skuli hafa skrifað undir breytingu á lífeyrisréttindum félagsmanna án þess að hafa kynnt það fyrst fyrir þeim. Hér er um mikla hagsmuni að ræða sem hart var barist fyrir og því teljum við að formaður og stjórn KÍ hafi farið út fyrir valdssvið sitt með því að samþykkja að því er virðist mjög viðamiklar breytingar án þess að leita fyrst samþykkis félagsmanna.
Samkomulagið hefur ekki enn verið kynnt fyrir okkur og því erfitt að álykta um það efnislega. Þar sem tími er naumur og útlit fyrir að samkomulagið verði senn að lögum á Alþingi viljum við koma mótmælum okkar á framfæri nú þegar og krefjast þess að fá að greiða atkvæði um þetta stóra hagsmunamál áður en lengra er haldið.
Burtséð frá vinnubrögðunum og þeirri leynd hvílt hefur yfir þessum málum þá hafa kennarar að auki slæma reynslu af því að treysta stjórnvöldum og „vilja þeirra“ til að „leitast við“ að hækka laun eða bæta kjör okkar á nokkurn hátt.
Sé raunverulegur vilji til „launajöfnunar“ hefði það átt að endurspeglast í nýgerðum kjarasamningi sem grunnskólakennarar felldu en þar sáust engin merki um þann yfirlýsta vilja sem fram kemur í þessu samkomulagi.
Við mótmælum þessu harðlega og krefjumst kynningar á samkomulaginu og þess að fá að greiða atkvæði um þátttöku KÍ í því.
Hafi formaður KÍ ekki gert neina fyrirvara á undirskrift sinni um samþykki félagsmanna, teljum við það afglöp í starfi sem kalli á tafarlausa afsögn hans.“
Ályktun kennara og stjórnenda við Norðlingaskóla í Reykjavík 23. september
„Kennarar og stjórnendur í Norðlingaskóla mótmæla eindregið undirritun samkomulags um samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn og telja að með undirritun þess hafi forysta KÍ farið út fyrir umboð sitt. Kennarar skólans telja sig óbundna af undirrituninni, enda fer hún gegn ályktun sem gerð var á 6. þingi Kennarasambands Íslands sem haldið var 1.-4. april 2014.
Nú liggur fyrir að framtíðarlífeyrisréttindi nýrra starfsmanna verða skv. samkomulaginu skert, starfsævin lengd og ábyrgð vinnuveitanda á Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna afnumin, án þess að niðurstaða hafi fengist í það hvað komi í staðinn og á hvern hátt laun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins verði jöfnuð.
Það er ein af grunnforsendum jöfnunar lífeyrisréttinda að launakjör á milli markaða verði á sama tíma jöfnuð. Slíkt er alls ekki tryggt í samkomulaginu. Það er því ljóst að með samkomulaginu eru kjör kennara, sem slæm eru fyrir, gerð enn verri. Slíkt er óverjandi með öllu við þær aðstæður sem nú eru uppi í kjaramálum kennara.“
Ályktun kennarafundar í Fossvogsskóla – 29. september 2016
Ályktun kennarafundar í Álftanesskóla – 27. september 2016