Undirbúningur vinnumats
Nýir kjarasamningar framhaldsskóla fela í sér samkomulag aðila um að undirbúa nýtt vinnumat á kennsluþættinum í ársstarfi kennara eða nánar tiltekið mat á vinnu við kennslu og námsmat í hverjum námsáfanga sem kenndur er í framhaldsskólum landsins. Vinnumatið er í undirbúningi og stýrir verkefnisstjórn honum. Fimm vinnumatsnefndir hafa verið skipaðar og vinna um þessar mundir með verkefnisstjórn að öflun gagna um vinnumat kennara á einstökum námsáföngum sem þeir kenna. Matsdæmin verða notuð við gerð svokallaðra sýnidæma samkvæmt kjarasamningi.
Vinnumatið á að fara fram á faglegum grundvelli. Tilgangur matsins er að reyna að fá fyllri og sundurgreindari mynd af vinnu framhaldsskólakennara við kennslu og námsmat en gildandi ákvæði kjarasamninga leyfa. Með því er bæði skírskotað til almennra breytinga á kennarastarfinu undanfarna áratugi og til margbreytileika kennslu og námsmats í framhaldsskólum landsins.
Sýnidæmi, reikniverk og kjarasamningar
Til þess að auðvelda innfærslu matsins á þessu stigi vinnunnar hefur verið útbúið reikniverk sem jafnframt má segja að sé á prófunar- og þróunarstigi. Reikniverkið byggir fyrst og fremst á forsendum 7. greinar kjarasamnings framhaldsskóla en þar eru tilgreind þau sjónarmið sem taka ber tillit til í vinnumati. Nokkrar forsendur eða innfærslutilefni í reikniverkið reyndist þó nauðsynlegt að hafa sem ekki eiga sér skýran bakhjarl í kjarasamningi. Slíkt verður að telja eðlilegt þegar unnið er með slík nýmæli sem fyrirhuguð eru í framsetningu mats á vinnu kennara.
Áform um styttingu námstíma í framhaldsskóla og efni kjarasamnings
Í samningaviðræðum síðastliðið vor var tekist verulega á um efni væntanlegs kjarasamnings og hafði málflutningur menntamálayfirvalda um þá stefnu sína að stytta námstíma til stúdentsprófs um fjórðung veruleg áhrif. Það er ekki kyndugt í ljósi þess að heill langur kafli í kjarasamningum framhaldsskóla fjallar um vinnutíma. Samningsaðilar náðu þó landi og sú vinna sem nú fer fram við undirbúning vinnumats er öll rækilega skilgreind í miðlægum kjarasamningum.
Nú á haustdögum má finna nokkurn titring í framhaldsskólunum sem á ný tengist menntamálayfirvöldum – í þetta skipti málflutningi menntamálaráðherra um áform um styttingu námstíma í framhaldsskóla. Í eyrum margra hljómar efni þeirra yfirlýsinga eins og áformin séu á skjön við efni kjarasamnings KÍ/framhaldsskóla og ríkisins. Af því tilefni er rétt að árétta eftirfarandi atriði:
Í yfirlýsingu menntamálaráðherra með kjarasamningi frá 4. apríl 2014 segir meðal annars þetta:
„Mennta- og menningarmálaráðherra mun á gildistíma kjarasamnings fjármála-og efnahagsráðherra og Kennarasambands Íslands, sem undirritaður er í dag, innleiða aðalnámskrá framhaldsskóla, m.a. með því að:
- endurskipuleggja formlegan námstíma í samræmi við núgildandi aðalnámskrá og aðgangsviðmið háskóla. Miðað er við að þessar breytingar hefjist í skrefum haustið 2015.“
Hér er sérstaklega bent á síðustu málsgrein ofangreinds tilvitnaðs texta um að fyrirhugaðar breytingar hefjist í skrefum frá og með næsta skólaári.
Í 7. grein kjarasamningsins sem fjallar um viðmið um vinnumat er undirgrein sem ber yfirskriftina Sveigjanlegt mat vegna meginbreytinga. Hún er svona:
Verði meginbreytingar gerðar á útfærslu skóla á leiðum til námsloka svo sem tímalengd náms eða öðru ytra skipulagi sem hefur áhrif á kennslufyrirkomulag innan skólans skal endurmeta vinnumat áfanga sem tilheyra slíkri breytingu.
Við slíkt endurmat skal meðal annars taka tillit til þess hvort aukið álag fylgi nýju fyrirkomulagi svo sem vegna hraðari yfirferðar námsefnis en í venjulegu skólahaldi eða annars sem áhrif kann að hafa á vinnu kennara.
Slíkt mat verður unnið á sama hátt og almennt vinnumat og ræðst af þeim breytingum sem gera á.
Tilvitnanirnar tvær í efni kjarasamnings er hér til komnar vegna þess að ekki virðist samhljómur með málflutningi menntamálaráðherra að undanförnu og efni kjarasamnings þar með talið yfirlýsingar ráðherrans sjálfs. Með því er ekki sagt að áform um styttingu námstíma hafi ekki verið ljós þeim sem gerðu kjarasamning síðastliðið vor. Kjarasamningurinn og yfirlýsingin segja hins vegar tvennt:
- Endurskipulagning námstíma í framhaldsskóla á að hefjast í skrefum næsta haust.
- Verði ákveðið í einstökum skólum að breyta verulega leiðum til námsloka svo sem tímalengd náms o.s.frv. kallar slík breyting á sérstakt endurmat á vinnu kennara sbr. nánar efni 7. greinar kjarasamnings.
Öll undirbúningsvinna og framkvæmd vinnumats samkvæmt 6.-13. grein kjarasamnings gerir ráð fyrir því að kennarar meti vinnu sína á grundvelli þeirra námsáfanga sem þeir eru að kenna og hafa kennt að undanförnu. Matið byggir þannig á reynslu af yfirstandandi kennslu og fyrri reynslu af kennslu sömu eða sambærilegra áfanga í núverandi kennslufyrirkomulagi. Meginbreytingar á því fyrirkomulagi myndu samanber ofangreint kalla á matsumferð númer tvö eða endurmat.
Elna Katrín Jónsdóttir.