Undirbúningur þings í fullum gangi

Kennarasamband Íslands hefur boðað til 8. þings sambandsins sem fram fer dagana 1. til 4. nóvember næstkomandi.
Um 250 félagsmenn KÍ munu sitja þing sambandsins fyrstu dagana í nóvember. Frá árinu 2000 hefur Kennarasambandið haldið sjö sinnum þing og því verður boðað þing það áttunda í röðinni. Þó má geta þess að efnt var til aukaþings haustið 2020 og því framhaldið á vordögum 2021.
Undirbúningur fyrir þingið er kominn á fulla ferð enda í mörg horn að líta þegar svo stór samkoma er annars vegar. Þingstörf munu standa yfir í nærfellt fjóra daga og þingfulltrúar verða vel á þriðja hundrað auk starfsfólks KÍ. Rétt til setu á þinginu eiga stjórnarmenn KÍ, varaformenn aðildarfélaganna og síðan einn fulltrúi fyrir hverja 50 félagsmenn. Að auki skipar Félag kennara á eftirlaunum fimm fulltrúa.
Hefðbundinn þingtími hefur verið í mars eða apríl en vegna COVID var ákveðið að fresta þinginu fram í nóvember.
Tímalínan er í grófum dráttum þessi:
- Þing var formlega boðað 16. og 17. júní síðastliðinn í tölvupósti sem var sendur á alla félagsmenn.
- 5. september er síðasti dagur sem hægt er að senda inn tillögur að lagabreytingum. Frestur rennur út á miðnætti.
- Stefnuskjöl og ályktanir þurfa liggja fyrir fyrir miðnætti 19. september.
Þing KÍ, sem fer fram fjórða hvert ár, hefur æðsta vald í málum Kennarasambandsins.
Á þinginu er mörkuð stefna til næstu fjögurra ára í öllum málaflokkum sem unnið er að innan KÍ. Skipað verður í ellefu nefndir sem taka til starfa á þinginu. Þær eru allsherjarnefnd, launa- og kjaramálanefnd, fjárhagsnefnd, orlofs- og ferðanefnd, útgáfunefnd, laganefnd, skólamálanefnd, fræðslu- og félagsmálanefnd, vinnuumhverfisnefnd, jafnréttisnefnd og umhverfisnefnd. Sú síðastnefnda tekur til starfa í fyrsta sinn.
Gera má ráð fyrir að á þinginu verði ályktað um kjaramál og margvísleg málefni er varða skóla- og menntamál.