Undirbúningur að nýju vinnumati hafinn
Verkefnisstjórn um nýtt vinnumat framhaldsskólakennara tekur til starfa í sumarbyrjun en undirbúningur er þegar hafinn. Þetta segir Elna Katrín Jónsdóttir, sérfræðingur hjá FF, í nýjum vikupósti á vef Félags framhaldsskólakennara. Vinna við nýtt vinnumat verður að sögn Elnu veigamikil og reyna mun á samstarf og hugvit allra sem starfa í framhaldsskólunum.
Elna fjallar um gerð nýs kjarasamnings í grein sinni og segir félagsfólk í KÍ enn og aftur hafa sannað að samstaða hópsins sé eina leiðin til að koma einhverju tauti við stjórnvöld. „Já, kæru félagar það tókst með handafli að ná vissum áfanga í leiðréttingu kjara og í því að bæta stöðu framhaldsskólanna til þess að sinna hlutverki sínu – mennta unga fólkið og hafa vel menntað og áhugasamt fólk í vinnu,“ skrifar Elna. Þá þakkar hún nemendum veittan stuðning á meðan á kjarabaráttunni stóð, stuðningurinn „snerti okkur djúpt og við erum þeim þakklát,“ skrifar Elna Katrín Jónsdóttir í víkupóstinum.