Undir okkur sjálfum komið að láta heyra í okkur

Ráðstefnan Skóli nútíðar – vegvísir til framtíðar fer fram í Hörpu 9. apríl. Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, segir löngu tímabært að félagsfólk í Kí gangi á undan í umræðum um störf kennara, stjórnenda og námsráðgjafa. Félagsfólk KÍ er hvatt til að sækja ráðstefnuna.
Kæru kollegar!
Í liðinni viku kynntum við ráðstefnu sem Kennarasamband Íslands mun standa fyrir í Hörpunni þann 9. apríl næstkomandi.
Ráðstefnan er hluti af stefnumörkun um mikilvægi radda skólafólks þegar kemur að öllum þáttum skólastarfs, óháð skólastigi eða skólagerð. Á undanförnum árum hafa fulltrúar KÍ oft verið kallaðir til inn á ráðstefnur annarra og þá oft til að ræða málefni út frá sjónarhorni þess sem heldur viðkomandi fund.
Allt er það gott og blessað en það er okkar mat hjá KÍ að löngu hafi verið kominn tími á að við gengjum á undan í umræðum um okkar störf og ráðstefnan er skref í þá átt.
Segja má að ákveðin forsaga ráðstefnunnar hafi hafist þegar Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, fór hringinn um landið ásamt fulltrúum sjóða- og útgáfusviðs og hitti félagsfólk. Haldnir voru fundir þar sem starfsemi KÍ var kynnt en markmið fundanna var ekki síst að heyra raddir félagsfólks, hlusta eftir væntingum um hlutverk KÍ og fá hugmyndir að bættri þjónustu.
Í framhaldi þeirra viðburða var svo ákveðið að setja af stað viðhorfs- og þjónustukönnun byggt á vangaveltum þeirra en líka til þess að fanga umræðu bæði í nútíð og síðustu missera um ólíka þætti í starfi kennara, skólastjórnenda, ráðgjafa og annars skólafólks. Könnunin var unnin í samstarfi við Félagsvísindastofnun HÍ og fór fram í febrúar. Skemmst er frá því að segja að mikil og góð þátttaka var í könnuninni, umfram okkar væntingar en vekur okkur gleði að greina mikinn áhuga félagsfólks á að láta raddir sínar heyrast.
Ráðstefnan í Hörpu
Uppbygging ráðstefnunnar er tvískipt. Að morgni mun Alison Louise Milner, lektor við Háskólann í Álaborg, halda erindi þar sem hún fer yfir árangursríkar aðferðir í nýliðun skólafólks og síðan helgun þeirra í starfi. Niðurstöður viðhorfs- og þjónustukönnunar KÍ verða kynntar, bæði með hefðbundinni glærusýningu og í kjölfarið verður efnt til pallborðsumræðnanna um hvernig nýta megi niðurstöðurnar í okkar störfum.
Að hádegishléi loknu verða sett upp alls átta umræðutorg um ólíka þætti könnunarinnar auk þess sem að snert verður á nýlegum „heitum“ málum skólastarfsins. Á öllum umræðutorgum verða kveikjur og stuttar kynningar auk þess að gefinn verður kostur á viðbrögðum úr sal.
Dagskrá að morgni verður send út í streymi en upptökur af öllum þáttum ráðstefnunnar, erindum að morgni og umræðutorgum eftir hádegi, verða gerðar aðgengilegar á vef KÍ. Niðurstöður umræðutorganna verða jafnframt teknar saman og birtar á vefnum.
Raddir félagsfólks í fyrirrúmi
Kennarasambandið horfir til ráðstefnunnar sem stórs þáttar í stefnumörkun okkar, bæði hjá heildarsamtökunum en einnig hjá hverju aðildarfélagi. Við höfum undanfarin ár greint stöðugt meiri áherslu félagsfólks á skólamálaþátt starfsins sem og kröfur um bætt starfsumhverfi í takt við væntingar til starfa. Ráðstefnan er skref á þeirri leið, í kjölfar hennar munu lykilatriðin rata inn í stefnumótun þá er snýr að störfum félagsfólks KÍ.
Við ætlum að halda áfram að flytja félagsfólki fréttir af framgangi málefnanna jafnóðum og ætlunin að halda áfram því samtali sem Jónína hóf síðasta haust, þar sem við erum sannfærð um það að raddir okkar fólks eiga að vera í fyrirrúmi.
Ég hlakka óstjórnlega mikið til að hitta ykkur sem komist í Hörpuna 9. apríl og fara yfir þau málefni sem hér hafa verið reifuð, það er undir okkur sjálfum komið að sýna fram á hversu sterkar raddir okkar eru þegar kemur að starfsvettvangi okkar, við erum fólkið sem munum hámarka árangur þeirra starfa til framtíðar!
Með kveðju,
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ