Umsóknum fjölgar um fimmtung

Fréttir|27. júní 2022

Alls sóttu 110 um leikskólakennaranám á Menntavísindasviði HÍ fyrir næsta skólaár. Tæplega 170 sóttu um nám í grunnskólakennarafræðum.

Umsóknum um nám í leikskólakennarafræðum fjölgaði um 20 prósent á milli ára en alls sóttu 110 manns um að hefja nám í haust. 

Sjötíu leikskólakennarar brautskráðust frá Háskóla Íslands á laugardag en það er veruleg fjölgun frá fyrri árum. Árið 2020 voru þeir 21 og 49 fyrir ári síðan. 

Alls bárust 670 umsóknir í grunnnám á Menntavísindasviði HÍ fyrir næsta skólaár; tæplega 170 sóttum um nám við námsleiðir grunnskólakennslu, tæplega 60 sóttu um nám í kennslufræði fyrir iðnmeistara og kennslufræði verk- og starfsmenntunar. Um hundrað manns ætla að leggja stund á íþrótta- og heilsufræði, rúmlega 90 í þroskaþjálfafræði, 78 ætla í uppeldis- og menntunarfræði og 39 stefna á nám í tómstunda- og félagsmálafræði. 

Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Háskólans.