Umsóknarfrestur Nordplus er 1. október
Nordplus norræna tungumálaáætlunin auglýsir aukaumsóknarfrest fyrir styrkumsóknir 1. október 2015. Rafrænt umsóknareyðublað og frekari upplýsingar um áætlunina má nálgast á www.nordplusonline.org.
Markmið áætlunarinnar er að:
- styðja við verkefni sem auka skilning og þekkingu á norrænum tungumálum (einkum dönsku, norsku og sænsku). Sérstök áhersla er lögð á að ná til barna og ungmenna.
- styrkja þróun námsefnis, kennsluaðferða og áætlana sem miða að þekkingu á norrænum tungumálum á öllum menntastigum.
Áætlunin er opin stofnunum á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum og styrkir ýmsar tegundir verkefna: t.a.m. námskeið, fundi, ráðstefnur, rannsóknir, námsefnisgerð og annað sem styður við formlegt eða óformlegt nám í norðurlandatungumálum. Verkefna verða að hafa kennslufræðilegt inntak og hafa norðurlandatungumál sem aðaláherslu verkefnisins. Umsóknir verða að vera skrifaðar á dönsku, sænsku eða norsku.
Að auki skulu umsóknir vera samstarfsverkefni þriggja Norðurlanda / Eystrasaltslanda og í þessari umsóknarlotu er sérstök áhersla lögð á stofnun samstarfsneta fyrir framtíðarsamstarf. Hafir þú áhuga á að taka þátt í framtíðarsamstarfi um norðurlandatungumál en vantar samstarfsaðila, geturðu skrifað okkur stuttan póst og sagt frá sjálfum þér, við hvað þú starfar og hvers konar samstarfsverkefni þú hefur áhuga á að taka þátt í (ath. að hefðbundnar bekkjaheimsóknir eru ekki styrktar í þessari áætlun). Við söfnum saman þessum upplýsingum og reynum að leiða saman hugsanlega samstarfsaðila.
Meðfylgjandi er bæklingur með dæmum um verkefni sem hafa hlotið styrk úr Nordplus norrænu tungumálaáætluninni.