Umsóknarfrestur framlengdur
Fréttir|13. maí 2016
Umsóknarfrestur um Framhaldsnám grunnskólakennara og framhaldsskólakennara sem eru með starfsleyfi hefur verið framlengdur til 5. júní.
Um er að ræða nýja námsleið fyrir starfandi kennara sem hafa lokið námi á fyrsta háskólaþrepi með B.Ed.-gráðu eða aðra viðurkennda bakkalárgráðu og hafa starfsleyfi sem grunnskólakennarar. Hin nýja námsleið tilheyrir öðru háskólaþrepi samkvæmt viðmiðum um æðri menntun og prófgráður við íslenska háskóla og lýkur með 120 eininga (ECTS) meistaraprófi að loknu 3–4 ára námi.