Umsóknarfrestir Erasmus+ 2015

Fréttir|27. október 2014

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur auglýst umsóknarfresti í Erasmus+ áætluninni fyrir árið 2015. Fyrir flokkinn ,,Nám & þjálfun“ er umsóknarfrestur 4. mars og í flokknum ,,Samstarfsverkefni“ er lokafrestur 31. mars.

Þeir sem hafa hugsað sér að sækja um, sér í lagi þeir sem ekki hafa sótt um áður, eru hvattir til að kynna sér vel Erasmus+ handbókina – en þar eru upplýsingar um hvaða skilyrði umsækjandi þarf að uppfylla, hvernig umsókn er metin, upphæðir styrkja og umsóknarfresti.

Í Æskulýðshluta Erasmus+ eru þrír umsóknarfrestir; 4. febrúar, 30. apríl og 1. október. Nánari upplýsingar um þá styrki veitir starfsfólk Evrópu unga fólksins.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Erasmus+ á Íslandi hjá Rannís og hjá Evrópu unga fólksins.

Sjá nánar hvernig sótt er um í Erasmus+

Í verkefni sem sótt er um beint til Brussel eru ýmsir umsóknarfrestir á fyrri hluta ársins 2015. Miðstýrð samstarfsverkefni hafa sértækari markmið en hefðbundin Erasmus+ samstarfsverkefni. Miðstýrðu verkefnin snúa annars vegar að samstarfi atvinnulífs og skóla svokölluð ,,Sector Skills Alliances“. Þau verkefni ganga út á þróun nýrra námsleiða eða aðferða við kennslu og þjálfun í ákveðnum starfsgreinum. Hins vegar eru þetta svokölluð ,,Knowledge Alliances“ sem ganga út á samstarf háskóla og atvinnulífs. Þannig verkefni leitast við að þróa námsleiðir, námskrár og önnur menntaúrræði í samstarfi háskóla og fyrirtækja. Umsóknum skal skilað inn miðlægt til Brussel fyrir umsóknarfrest sem verður 30. mars 2015.

Þann 12. nóvember n.k. verður framkvæmdastjórnin með upplýsingadag í Brussel fyrir þá sem hyggjast sækja um miðstýrð verkefni. Hægt er að fylgjast með dagskránni beint á Netinu. Sjá nánar um upplýsingadaginn.

Í íþróttahluta Erasmus+ eru tveir umsóknarfrestir. Í flokknum ,,Evrópsk íþróttavika“ er umsóknarfrestur 22. janúar. Í öðrum íþróttatengdum verkefnum er umsóknarfrestur 14. maí. Hægt er að fá nánari upplýsingar um þau verkefni með því að senda tölvupóst á starfsfólk Erasmus + á Íslandi.