Umsóknafrestur í Námsleyfasjóð lengdur til 14. október

Fréttir|9. október 2024

Umsóknafrestur í Námsleyfasjóð fyrir skólaárið 2025-2026 hefur verið framlengdur til klukkan 15:00, mánudaginn 14. október 2024.

Vakin er athygli á því að opið er fyrir umsóknir í Námsleyfasjóð fyrir skólaárið 2025-2026. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 14. október kl. 15.

Stjórn sjóðsins hefur ákveðið að nýta ekki heimild 6. gr. reglna um Námsleyfasjóð um að auglýsa úthlutun til forgangsverkefna. 

Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga, umsóknir sendar á öðru formi verða ekki teknar gildar.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Námsleyfasjóðs.