Umsögn KÍ um menntastefnu

Kennarasamband Íslands lýsir yfir ánægju með meginmarkmið menntastefnunnar um að móta framúrskarandi menntakerfi.
Kennarasamband Íslands skilaði inn umsögn um tillögu til þingsályktunar um menntastefnu fyrir árin 2020-2030. Í umsögninni er tillögunni fagnað og talið styrkur að hún sé lögð fyrir Alþingi. Kennarasamband Íslands lýsir yfir ánægju með meginmarkmið menntastefnunnar um að móta framúrskarandi menntakerfi. Í stefnunni er dregið fram að kennarar og skólastjórnendur sé í lykilhlutverki við framkvæmd nýrrar menntastefnu og undir það tekur KÍ heilshugar.
„Í framkominni menntastefnu eru margar af helstu áherslum framtíðar varðandi menntamál ávarpaðar án þess að fyrir liggi með hvaða hætti þeim verður mætt. Ljóst er að til þess að koma á mikilvægum atriðum í stefnunni eins og meiri samfellu í þjónustu við nemendur, aukinni viðurkenningu á störfum kennara, bættum starfsaðstæðum á leiksskólastiginu, eflingu list- og tæknináms, aukinni og breyttri námsráðgjöf á öllum skólastigum verður að grípa til markvissra aðgerða, viðamikils samráðs og aukinna fjárframlaga í málaflokknum.”
Kennarasambandið kemur inn á nokkur atriði sem snerta kennarastarfið, kennararáð, leikskólastigið, tónlistarskóla, starfs- og tækninám, listnám og tengsl og hlutverk Menntamálastofnunar. Varðandi leikskólastigið er mikilvægt að horfa til styrkingu þess enda langt í land að lagaviðmið náist um að 2/3 hluti starfsfólks sé með kennaramenntun. Þá er tekið fram að tónlistarskólar gegna lykilhlutverki í menntakerfinu og þjóni breiðum hópi innan samfélagsins. „Þá vill KÍ benda á að nauðsynlegt er að lögvernda starfsheiti og starfsréttindi félagsmanna KÍ í tónlistarskólum í samræmi við lög um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Aðalnámskrá fyrir tónlistarskóla hefur ekki verið endurskoðuð síðan hún kom fyrst út fyrir tuttugu árum og lög um tónlistarskóla eru frá árinu 1985 og því löngu tímabært að endurskoða hvort tveggja. Einnig þarf að tryggja tónlistarskólum faglega og rekstrarlega umgjörð.”
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um menntastefnu fyrir árin 2020-2030