Umhugað um öflugan framhaldsskóla

Fréttir|5. desember 2021

Guðjón Hreinn Hauksson hefur gegnt formennsku í Félagi framhaldsskólakennara síðan 2019. Hann hlaut afar góða kosningu í september það ár en hafði áður verið starfandi formaður félagsins um tveggja mánaða skeið, eftir að Guðríður Arnardóttir sagði af sér formennsku og tók við starfi skólameistara í MK. Ritstjórar Skólavörðunnar settust niður með Guðjóni og spurðu út í formannsstarfið, stöðu framhaldsskólans og hvað væri efst á baugi í starfsemi Félags framhaldsskólakennara (FF).

„Ég kann vel við starf formanns, verkefnin eru áhugaverð og skemmtileg frá degi til dags en um leið afar krefjandi. Það eru alltaf mörg verkefni í gangi, margir fundir í hverri viku og í mörg horn að líta. Skipulagning og forgangsröðun verkefna er því snar þáttur í vinnunni,“ segir Guðjón Hreinn. Hann segist vera að komast æ betur inn í starfið en það taki tíma að kynnast öllum þáttum þess.

Hækka þarf launin svo um munar

Spurður hvað beri hæst á borði formanns þessa daga segir Guðjón það vera nokkur veigamikil mál. „Það sem ég legg mesta áherslu á nú er að fylgja eftir síðustu kjarasamningum við ríkið og einkaskólana. Á samningstímanum þarf að vinna mörg verkefni og eins gott að halda vel á spilunum þótt samningur verði ekki laus fyrr en í lok mars 2023. Mikilvægt er í þessari vinnu að hugsa til framtíðar og tryggja gæði framhaldsskólastigsins. Eitt áhyggjuefni þar eru kennararnir sjálfir, eða öllu heldur samsetning hópsins,“ segir Guðjón Hreinn.

„Við höfum séð hæga og stöðuga þróun í kynjasamsetningu félagsmanna frá aldamótum en þá var jafnvægi á milli kvenna og karla í stéttinni. Nú er svo komið að karlarnir eru um 38 prósent framhaldsskólakennara. Annað ekki síður alvarlegt er að aldur stéttarinnar fer hækkandi; framhaldsskólakennarar eldast hratt. Rétt tæpur þriðjungur karla sem vinna við kennslu í ríkisskólunum er kominn yfir sextugt. Ég hef sterkan grun um að þarna séu í meirihluta karlar sem sinna kennslu í iðngreinum og ef ekki verður mikil í nýliðun innan stéttarinnar þá horfum við fram á að missa stóran hluta hennar á eftirlaun.“

Kennaranemum hefur fjölgað síðustu misseri og segir Guðjón Hreinn það jákvætt. „Við fögnum því auðvitað að fleiri sæki í kennaranám, enda þarf að fjölga kennurum svo um munar á öllum skólastigum. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að vandi er yfirvofandi og kannski sérstaklega þegar kemur að iðn- og verknámi.

Við þurfum að finna leið til að fá fólk sem hefur reynslu úr atvinnulífinu til að taka að sér kennslu í framhaldsskólunum. Heilt á litið er þetta staða sem þarf að taka mjög alvarlega.“

Bætt launakjör og jöfnun launa milli markaða eru atriði sem gætu haft jákvæð áhrif á þróun mála.

„Það er löngu ljóst að við þurfum að hækka launin svo um munar. Stjórnvöld verða einfaldlega að standa við gefin fyrirheit um jöfnun launa milli markaða. Það er ekki hægt að búa við þá staðreynd að framhaldsskólakennarar hérlendis séu eilíflega eftirbátar kolleganna á hinum Norðurlöndunum. Líka er hægt að nefna Skotland en þar eru meðallaun kennara næstum 30 prósentum hærri en meðallaun í landinu. Þetta er dæmi um skýra forgangsröðun þar sem menntun er metin að verðleikum.“

Stuðningur og þjálfun í samningagerð

Félag framhaldsskólakennara er mitt á milli kjarasamninga, ef svo má að orði komast. Núgildandi samningur tók gildi á fyrsta degi þessa árs og rennur ekki út fyrr en 31. mars 2023.

Guðjón segir að þótt býsna langt sé í næsta samning þá standi yfir mikil vinna við bókanir sem gerðar voru í tengslum við núgildandi kjarasamning.

„Þarna má til dæmis nefna þrjár bókanir sem varða stofnanasamninga. Við erum mjög áfram um að fylgja vel eftir þeim atriðum sem þar koma fram. Stærsta verkefnið er mikilvæg tilraun til þess að efla umhverfi stofnanasamninga inni í skólunum. FF semur ekki um launaröðun á miðlægum grunni heldur er samið um launatöflu. Hvernig störfum og verkefnum er raðað til launa fer fram í skólunum sjálfum, í stofnanasamningum. Okkur samdist um það síðast að framhaldsskólum yrðu veittar 160 milljónir króna á ársgrundvelli til að auka virkni stofnanasamninga. Fjárframlagið er ætlað sem hreyfiafl inn í umhverfi þessara samninga sem því miður hafa ekki verið mjög virkir fram að þessu.

Við erum aukinheldur á útopnu að styðja við samstarfsnefndirnar í skólunum og höfum byggt upp sterkt tengslanet. Þá erum við að þjálfa fólk í samningatækni og höfum á sama tíma aflað mikilla gagna um hvern skóla fyrir sig; þetta er ekki bara gert til að hjálpa okkar fólki heldur líka til að styðja skólameistara og stjórnendur í þessu flókna verkefni,“ segir Guðjón Hreinn.

Guðjón Hreinn ásamt starfsmönnum FF; Þorbirni Rúnarssyni og Ingibjörgu Karlsdóttur. 

Betri vinnutími – stytting vinnuvikunnar

Stytting vinnuvikunnar er mikið til umræðu í samfélaginu og í kjarasamningi FF er að finna tvær bókanir þar að lútandi.

„Það er í gangi þjóðarátak um að stytta vinnuvikuna og þetta átak verður að ná líka til kennarastéttarinnar. Það má segja að við séum byrjuð í ferli við styttingu vinnuvikunnar, en það á við um félagsfólk okkar sem vinnur skrifstofustörf eða eru náms- og starfsráðgjafar.
Það er snúnara verkefni að vinna að betri vinnutíma og styttri vinnuviku í hópi framhaldsskólakennara. Kennararnir vinna samkvæmt vinnumati þar sem allir vinnuþættir eru áætlaðir; starfsumhverfið er verkefnamiðað, hver áfangi er eitt verkefni og innan hvers áfanga eru undirverkefni. Það er algerlega ófært að kennarar stimpli sig inn til vinnu eða inn og út úr mismunandi verkþáttum,“ segir Guðjón Hreinn.

Vinnutími framhaldsskólakennara er að mati Guðjóns Hreins alltof langur. „Skólaárinu er þjappað á 180 daga og á þeim tíma vinna kennarar megnið af sínu ársverki. Þetta hefur í för með sér að vinnuvika kennara í fullu starfi yfir starfstíma skóla er nálægt 46 klukkustundum á viku. Það hefur lengi blasað við að draga þarf úr vinnuálagi kennara en í ljósi þess að margar aðrar starfsstéttir í samfélaginu hafa nú stytt vinnu­vikuna niður í 36 klukkustundir verður þessi mismunur enn ósanngjarnari. Við þurfum að vera komin með heildstæðan ramma um þetta mál fyrir næstu samningalotu,“ segir Guðjón Hreinn.

Hin langa vinnuvika og mikið álag hefur áhrif á starfsþróun og endurmenntun framhaldsskólakennara. „Þetta er snúið mál, einkum og sér í lagi vegna þess að kennarar búa við gríðarlegt annríki allt skólaárið. Alls 80 klukkustunda endurmenntun fer því fram í sumarhléum. Það er auðvitað nauðsynlegt að kennarar hafi tvær vikur til að efla sig og endurmennta á faglegum forsendum,“ segir Guðjón Hreinn og bætir við að starfsþróun þurfi einnig að verða hluti af daglegu starfi kennara.

„Við viljum vinna að því að breyta þessu enda er stefna þeirra sem koma að menntun í landinu, menntamálaráðuneytis, háskólanna og Kennarasambandsins, að starfsþróun skuli vera snar þáttur í starfi kennara á skólatíma. Nú er ekki rými fyrir slíkt en það þarf sannarlega að finna leiðir til að breyta því.“

Nú er svo komið að karlarnir eru um 38 prósent framhaldsskólakennara. Annað ekki síður alvarlegt er að aldur stéttarinnar fer hækkandi; framhaldsskólakennarar eldast hratt.

Erfiðara að halda úti fjölbreyttu námsframboði

Talið berst að stöðu framhaldsskólans almennt og ekki síst því hver áhrif styttingar námstíma til stúdentsprófs hafa verið.

„Ég hef miklar efasemdir um þessa styttingu. Ég tel hana bæði illa ígrundaða og illa undirbúna og tel einnig að framkvæmdin sjálf hafi verið mjög vafasöm. En þriggja ára nám til stúdentsprófs er nú orðin raunin með tilheyrandi afleiðingum.

Eitt markmið styttingar var að nemendur kæmu betur undirbúnir en áður inn í framhaldsskólann og að framhaldsskólinn skilaði nemendum jafn vel eða betur undirbúnum upp í háskóla. Því miður sjáum við þess ekki nægilega mikil merki.“ Guðjón nefnir að fræðasamfélagið hafi staðið fyrir ýmiskonar rannsóknum á áhrifum styttingarinnar og telur nauðsynlegt að Félag framhaldsskólakennara og Kennarasambandið allt rýni vel í þær rannsóknir og beiti sér fyrir nauðsynlegum umbótum.

„Við þurfum að skoða rækilega hvernig nemendum gengur nú að fóta sig í háskóla. Er bakkalárprófið kannski að verða ígildi stúdentsprófsins, eins og það var fyrir örfáum árum, þegar kemur að innihaldi og færni nemenda til að koma frá sér hugsun í texta og tali?“ segir Guðjón Hreinn og bætir við að sér hafi þótt mikil forréttindi sem kennari að fá að fylgjast með þroska nemenda á fjórum árum. „Þvílík breyting sem varð hjá nemendum sem komu inn sem börn en fóru út sem fullorðnir einstaklingar. Nú heyrum við nemendur framhaldsskólans segja: við viljum ekki fara strax, við vorum rétt að koma!“

Spurður hvort framhaldsskólakennurum hafi fækkað í kjölfar styttingar námsins segir hann svo ekki hafa orðið í sama hlutfalli og styttingin sjálf. „Við óttuðumst meiri fækkun framhaldsskólakennara í beinu framhaldi af styttingunni. En þótt kennarafjöldinn hafi kannski fundið jafnvægi eigum við örugglega eftir að sjá töluverð áhrif á samsetningu kennarahópsins. Eins og ég nefndi áður er gríðarlega mikilvægt að huga vel að nýliðun núna þegar við erum að fara að missa út mikið af okkar dýrmætasta fólki sökum aldurs.“

Fleira sem sameinar en sundrar

Félag framhaldsskólakennara er eins og flestir vita eitt sjö aðildarfélaga innan Kennarasambands Íslands. Guðjón Hreinn hefur starfsstöð á skrifstofu Kennarasambandsins við Borgartún en hann er búsettur á Akureyri.

Kjörtímabil Guðjóns Hreins rennur sitt skeið á næsta ári, eins og annarra formanna aðildarfélaganna. Guðjón hefur gefið út að hann hyggist gefa kost á sér næsta kjörtímabil.

„Já, ég hef þegar tilkynnt stjórn og samninganefnd félagsins að ég muni bjóða mig fram til formennsku annað kjörtímabil. Það tekur tíma að koma sér inn í málin. Mér finnst ég vera að ná tökum á starfinu og vil gjarnan halda áfram.“

Guðjón Hreinn segir búsetu á Akureyri ekki hindrun. „Það sannaðist í COVID að fjarvinna og fjarfundir geta virkað mjög vel. Ég er þó alltaf með annan fótinn í Reykjavík og er mikið fyrir sunnan enda ýmis verkefni sem kalla á það,“ segir Guðjón Hreinn og bætir við að sérfræðingarnir tveir sem starfa hjá félaginu, Ingibjörg Karlsdóttir og Þorbjörn Rúnarsson, séu frábærir samstarfsmenn sem ævinlega sé hægt að reiða sig á. „Það er gríðarlega mikilvægt fyrir formann á hverjum tíma að geta reitt sig á svona traust bakland.“

„Markmiðið hjá okkur í FF er fyrst og síðast að veita félagsfólki góða þjónustu og aðstoð við að leysa úr málum. Við búum líka vel að því að starfa með öðrum félögum undir hatti Kennarasambandsins og geta nýtt okkur þá sérfræðiþekkingu sem býr í starfsfólki KÍ. Málefnin eru mörg sem Kennarasambandið vinnur að og mun fleiri sem sameina okkur en sundra,“ segir Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara.

Viðtalið við Guðjón Hrein birtist í Skólavörðunni 2. tbl. 2021