Um takmarkanir eldri nema að starfsnámi og verknámi

Fréttir|2. október 2014

„Takmarkanir á aðgangi nemenda eldri en 25 ára að framhaldsskólunum munu varla ganga upp hvað varðar starfsnám og verknám í fjölbrautaskólum utan höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar. Starfs- og verknámsbrautir eru ekki fjölmennari en svo í þessum skólum að rekstur þeirra verður erfiðari og óhagkvæmari án eldri nema“ skrifar Ægir Karl Ægisson áfangastjóri við Fjölbrautaskóla Suðurnesja í nýjasta Vikupósti Félags framhaldsskólakennara.

Ægir Karl telur að það séu eldri nemendur sem geri það kleift að hægt sé að kenna efri áfanga: „Eldri nemar greiða fyrir því að hægt sé að kenna efri áfanga. Efri áfangar greiða fyrir því að hægt sé að halda úti grunndeildum. Efri áfangar eru skilyrði þess að raunfærnimat og fyrri verk- og starfsnám nýtist þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Aðgangur eldri nema nýtir hvatann til náms þegar hann er orðinn til.“