Um stöðu drengja

„Sá vandi sem við stöndum nú frammi fyrir varðandi drengi er djúpstæður. Hann vindur upp á sig. Lestrarkennslan nær ekki að glæða áhugann á lesefni þannig að lestur skáki annarri afþreyingu og áhugamálum,“ skrifar Ragnar Þór Pétursson, formaður KÍ.
Tæpur aldarfjórðungur er síðan umræðan um stöðu drengja í skólum hófst af fullum krafti í hér á landi. Síðan þá hefur margt verið rætt, rannsakað og gert en þrátt fyrir það minnka áhyggjurnar ekki. Algengt er að hafa til marks um vandann það hlutfall drengja sem á í vandræðum með bóklestur á hverjum tíma.
Á tímabili voru því uppi sterkar raddir um að aukin áhersla á lestur í skólum væri hið rökrétta úrræði. Gripið var til mjög viðamikilla aðgerða og gefin voru hástemmd fyrirheit sem síðan stóðust ekki. Vandinn virtist þvert á móti vaxa.
Vissulega birtist vandinn meðal annars í lestri drengja. Rætur hans liggja þó víðar og einhæf áhersla á lestur er álíka líkleg til árangurs og að reyna að lækna innvortis sýkingu með því að gefa hitalækkandi lyf.
Leið karla inn í samfélagið
Nýlega átti ég tal við einn af reyndustu forystumönnum atvinnurekenda síðustu áratugina. Málefnið barst í tal. Hann rifjaði upp nokkuð, sem rétt er að huga að í þessari umræðu: lestur og skrift hafa lengi verið tæpur mælikvarði á velgengi íslenskra karla. Hann benti á að fjölmargir frumkvöðlar og fyrirtækjaeigendur í íslensku samfélagi hefðu rétt svo geta talist sendibréfsfærir. Erfiðleikar við bóklegt nám hafi jafnvel verið einn af þeim þáttum sem ýtti þeim út í atvinnulífið af fullum þunga og gerði þá að brautryðjendum.
Ég hef enga ástæðu til að rengja þetta mat og tel það undirstrika mikilvægi tvenns: Í fyrsta lagi að fara þurfi að gát þegar leitað er að veikleikum og styrkleikum í fari fólks. En einnig, að rétt sé að nálgast þessa umræðu út frá grundvallarumræðu um tilgang náms.
Við höfum réttilega miklar áhyggjur af drengjum í íslensku samfélagi. Þær áhyggjur getum við rökstutt með ýmsum hætti og lagt á margvíslega mælikvarða. Ég vil raunar meina að þær séu síst ofmetnar. Ég hygg að ástæða sé til að ætla að taka þurfi hressilega til hendinni. Við berum þess því miður enn ýmis merki að vera ung og óreynd þjóð, full metnaðarlaus og félagslega vanþroska.
Tilgangur skóla
Ein leið til að skilgreina tilgang skóla er að hann sé sá staður sem veiti þér markvissastan undirbúning fyrir líf og starf í því samfélagi sem þú tilheyrir. Málið er þó auðvitað ekki svo einfalt. Ótalmargt, sem ekki er kennt í skólum, ræður miklu um það hvort og hvernig þú nærð fótfestu í lífinu. Þættir, sem hvorki eru á valdi kennarans né nemandans, hafa veruleg áhrif á afdrif einstaklingsins – og hafa meira að segja oft mikil áhrif á gengið í skólanum. Þá skiptir vonandi fjölmargt máli sem gert er í skólum og snýst fyrst og fremst um einstaklinginn sjálfan en ekki hlutverk hans gagnvart öðrum.
Íslenskt nútímasamfélag var ekki byggt upp á grunni öflugrar menntunar. Menntakerfið var smíðað utan um samfélag sem fram að því hafði fyrst og fremst horft á menntun sem forsendu embættisverka og einfaldar sáluhjálpar. Atvinnuhættir lifðu að mestu leyti sjálfstæðu lífi og sú hefð hefur aldrei horfið hér á landi að kennt sé til verka með vinnu.
Við höfum lengi vitað að einn alvarlegasti vandi íslenska menntakerfisins er það sem stundum er kallað hryggskekkja í átt til hefðbundins bóknáms. Íslenskt menntakerfi er of einhæft og bókadrifið. Það veldur því að menntakerfið skortir nauðsynleg tengsl við mikilvæg svið samfélagsins. Þá hefur tiltölulega einhæft atvinnulíf haft of mikið af menntun hverrar kynslóðar á sinni könnu og það hefur sogað til sín vinnuafl í of miklu magni of snemma. Þetta hefur meðal annars leitt til skorts á ábyrgðarkennd meðal almennings um að greiða götu ungs fólks til mennta. Sem síðan veldur því að lífskjör stúdenta á Íslandi eru óboðleg.
Dauðadæmt samfélag
Í samfélagi alþjóðavæðingar og upplýsingatækni er slíkt samfélag dauðadæmt. Ungt, lítið og einhæft menntað fólk eru nærtækustu fórnarlömb tæknibyltingar og flutninga sérhæfðs vinnuafls yfir landamæri.
Þetta þurfum við að taka alvarlega því hvorugt er kostur: að hafna tækninni eða flutningi verkafólks milli landa. Eini kosturinn er að standa betur við bakið á unga fólkinu okkar og aðlagast nútímanum.
Þetta virðist hafa verri áhrif á stöðu drengja en stúlkna. Þeir hafa átt greiðari leið inn í samfélagið á grundvelli kynferðis síns og viðhorfa. Á síðustu 20 árum eða svo hafa mjög margar af þessum leiðum lokast. Þær munu ekki opnast aftur.
Förum þó varlega í að álykta að þar með njóti stúlkur og konur forskots. Það er vissulega rétt að ýmis mælikvarðar sýna stöðu þeirra sterkari, sérstaklega þegar kemur að yfirborðskenndum námsmælikvörðum. Ef við höldum okkur þó við efnið og lítum á skólann sem hluta farvegs um stærra samfélag þá verðum við að horfast í augu við það að þrátt fyrir meiri upphafserfiðleika drengja þá reynist konum lífið í samfélaginu á margan hátt þyngra og erfiðara. Þær eru til dæmis mun líklegri til að búa við kerfislægt vanmat á menntun sinni og störfum. Þær eru einnig líklegri til að tapa heilsunni langt fyrir aldur fram.
Það er þess vegna mikilvægt að tapa ekki áttum í þessari umræðu eða reyna að stilla henni upp sem einhverskonar vansældarkeppni milli kynja. Hinn kerfislægi vandi karla kemur nú fyrr fram með áþreifanlegum hætti en vandinn er sannarlega ekki bundinn við þá. Það eru miklu fleiri víddir í málinu en svo. Látum því annað en kjarna máls liggja milli hluta í bili (og ræðum t.d. ekki áhrif búsetu eða uppruna) og snúum okkur að meginefninu.
Þversagnarkenndar lausnir
Ég held því fram, sem kann að virka þversagnarkennt í fyrstu, að stóraukin áhersla á lestur í íslensku menntakerfi geti verið líklegasta leiðin til að dýpka vandann í stað þess að grynnka hann. Í raun held ég að aukin áhersla á lestur í skólum sé einmitt ekki líklegasta leiðin til að auka lestur svo neinu nemi.
Í aðdraganda þess að umræða um stöðu drengja hófst fyrir alvöru höfðu rannsakendur veitt því athygli að drengir völdu sér annað lesefni en stúlkur. Þeir voru miklu líklegri til að velja sér fræðibækur eða önnur fróðleiksrit. Af einhverjum ástæðum völdu þeir síður hefðbundnari bókmenntir. Það var óheppni í ljósi þess að bókin hopaði að sjálfsögðu fyrst á þeim vettvangi sem drengir leituðu mest í. Sjálf leitum við okkur ekki upplýsinga í bókum lengur. Það gera börn ekki heldur. Það hafa verið smíðuð heilu algrímin til að tryggja að þau svali fróðleiksfýsninni með stafrænum hætti. Það kemur því engum á óvart hve orðaforða íslenskra ungmenna, og sérstaklega drengja, um jafnvel sérhæfðustu mál hefur fleygt fram í ensku á sama tíma og læsið á íslenskuna hefur dalað.
Lestur hefur verið á undanhaldi hjá ungum Íslendingum áratugum saman. Þróunin er hvorki ný né óvænt. Hún er samfelld. Það er ekki svo að íslensk börn hafi ekki áhuga á íslenskunni eða þyki hún ómerkileg. Þeim finnst einfaldlega svo margt annað merkilegt líka. Fyrsta kynslóð íslenskra barna er nú komin fram sem finnst hún alls ekki tilheyra Íslandi heldur heiminum. Meirihluti íslenskra barna stefnir á að búa erlendis í framtíðinni. Mestu lestrarhestarnir eru gjarnan fluttir að mestu úr íslenskum bókmenntaheimi undir lok grunnskólagöngu sinnar og sokknir á kaf í enska bókmenntaheiminn.
Vítahringur vandans
Sá vandi sem við stöndum nú frammi fyrir varðandi drengi er djúpstæður. Hann vindur upp á sig. Lestrarkennslan nær ekki að glæða áhugann á lesefni þannig að lestur skáki annarri afþreyingu og áhugamálum. Lesturinn verður ekki sjálfbær og því verður hann strit. Brátt stendur lesturinn í vegi fyrir því að nemandinn þrífist í námsgreinum þrátt fyrir að hafa bæði áhuga og hæfileika á mörgum sviðum. Bóknámshryggskekkjan ýtir undir vandann. Að lokum finnst nemandanum námið og skólinn tilgangslaus.
Það er mjög flókið mál að reyna að varðveita örlítið tungumál í vel tengdu samfélagi þar sem fyrir er skólakerfi sem í of miklum mæli hnitast um lestur. Vandi drengja er að einhverju leyti birtingarmynd þess að þeir séu í auknum mæli fluttir að heiman úr íslenskum málheimi allt of snemma.
Þess vegna tel ég að lausnin felist ekki í því að gera íslenskt skólakerfi enn bókamiðaðra. Nóg er það samt. Ef við gáum ekki að okkur gæti skólinn hætt að verða lífæð samfélagsins og endað sem einhverskonar þjóðháttasafn. Upp að því marki sem skólinn undirbýr börn fyrir líf í samfélagi verður hann að draga dám af því samfélagi sem er – ekki því sem einhvern tíma var. Lausnin felst í því að skapa hér samfélag og skóla sem kemur til móts við þá fjölbreytni sem býr í ungu fólki. Þar þurfum við sem þjóð að taka ákvörðun um það hvort íslenskt mál eigi að lifa áfram með þjóðinni og vera það tæki sem við rannsökum heiminn og okkur sjálf með. Við þurfum að gera íslenskt mál gjaldgengt í öllum miðlum og fjalla t.d. um áhugamál barna á íslensku af einlægni virðingu fyrir heimi þeirra. Við höfum búið börnum of fátæklegan málheim, sérstaklega á hinu stafræna sviði, og meðan svo er verður uppskeran rýr.
Gefum börnum tíma
Það kann að vera að við þurfum að gefa börnum meiri tíma til að ná valdi á íslensku tal- og ritmáli samhliða því að læra ensku. Við erum að ala upp tvítyngd börn. Með alla heimsins tækni hljótum við að geta sagt og sýnt þar sem það á við í stað þess að skrifa alla skapaða hluti. Við getum örugglega þróað markvissari leiðir til að greiða götu íslenskunáms (til dæmis með réttum kennsluaðferðum) en fyrst og fremst þarf að hlúa að börnum á hverju aldursskeiði miðað við þroska þeirra og þarfir. Metnaður þarf að vera fyrir hönd alls náms og á fyrsta skólastiginu á almenn velferð, tilfinningalegt heilbrigði og löngunin í leikinn að vera allsráðandi. Með hækkandi aldri á að virkja þann áhuga sem í leiknum felst til að ná tökum á margvíslegu námi. Fordóma okkar fyrir leikjum barna þurfum við að beisla. Raunar er líklegra til árangurs að mínu mati að fyrstu fyrstu ár barns í grunnskóla líkist leikskólaárunum en öfugt.
Grunnskólanám þarf að gera fjölbreyttari kröfur en bóklegar og fylgja þeirri námskrá sem er í landinu. Hér þarf að byggja þarf upp menntakerfi sem leggur að jöfnu bóklegt nám, listnám og verknám. Þar þurfum við líka að taka á okkar eigin fordómum og skökku viðmiðum.
Fyrst og fremst þurfa börn að finna tilgang með námi og löngun til að læra meira. Líka um lestur og bókmenntir. Við vitum það, sem brotist höfum í gegnum lestrarmúrinn, hvílík forréttindi það eru að vera læs. Lestur gefur lykla að ótal heimum. En það gera tölvuleikir og kvikmyndir líka. Ef börnum er kennt að meta hið fagra, góða og sanna og allar þær fjölbreytilegu leiðir sem þangað liggja, án fordóma eða snobbs, þá er mikið unnið. Í heimi stafrænnar síbylju er bóklestur frábært afdrep sem veitt getur mikla ánægju. Raunar mælir allt með því að fram undan geti verið blómatími bókmennta vegna þess hve athygli okkar þarf á því að halda.
Sjálfbært lestrarnám viðheldur sjálfu sér. Það fær lesandann til að vilja lesa meira. Ekki vegna þess að hann kunni að lesa heldur vegna þess að hann finnur eitthvað sem hann langar til að lesa. Ef viljinn var aldrei fyrir hendi skiptir getan engu máli.
Tíu sinnum meira frjálst áhorf en þvingaður lestur
Í Bandaríkjunum, Bretlandi og Spáni eyða börn á grunnskólaaldri nú um 85 mínútum að meðaltali á Youtube á dag og 80 mínútum á TikTok þrátt fyrir að megnið af þessum börnum hafi ekki náð þeim aldri sem áskilinn er til að nota þessi forrit. Það þýðir að jafnvel þótt heimalestri í 15 mínútur á dag væri viðhaldið frá 1. og upp í 10. bekk (en flestir kennarar þekkja að um leið og honum sleppir hættir stór hluti barna að lesa utan skóla) þá hefði barnið lesið heima í 450 klukkustundir á grunnskólagöngu sinni en horf á myndbönd í tæpa 5000 klukkutíma (hér erum við bara að tala um skóladaga). Þegar haft er í huga að barnið er að meðtaka tíu sinnum meiri upplýsingar sjálfviljugt en tilneytt þá hlýtur að vakna sú spurning hvort ekki sé hægt að mæta barninu á miðri leið og ná markmiðum náms með fjölbreyttari hætti en svo að þungamiðja alls skólastarfs sé sú miðlun sem við sjálf notuðum til afþreyingar á sínum tíma – en notum ekki einu sinni lengur.
Kannski er uppbyggilegasta leiðin áfram því sú að vera þolinmóð, gefa lestri meiri tíma en áður og auka á fjölbreyttar leiðir til upplýsingagjafar og -öflunar. Virkja síðan þann ofboðslega mátt sem býr í börnum af öllum kynjum og kynda undir fróðleiksþorsta þeirra. Efla læsi þeirra á öllum sviðum. Taka loks mið af þroska þeirra og smita þau af áhuga á góðri íslensku, hvort sem hún er fest á pappír, leiksvið, skjá eða tónlist.
Spurningin er nefnilega ekki sú hvort okkur takist að fá næstu kynslóð til að meðtaka málheim okkar heldur hvaða málheim næsta kynslóð ætlar að skapa sínum börnum. Ég vona að sá málheimur taki meira tillit til þeirra sem þá verða börn en sá heimur sem við höfum búið okkar eigin börnum.
Við erum hætt að gera ráð fyrir því að ungmenni verði fullorðin sextán ára, ráði sig í vinnu og kaupi heimili og eignist börn næsta áratuginn eftir það. Við erum hins vegar ekki búin að byggja þá innviði sem þurfa að vera til staðar svo börn fái að vera börn, ungmenni fái að vera ungmenni og ungt fólk fái að mennta sig á fjölbreyttum og krefjandi sviðum. Þar með sóum við orku, hæfileikum og tækifærum til að láta samfélag okkar vaxa innan frá. Sá vandi, sem nú birtist sem námsvandi drengja, getur hæglega vaxið að umfangi og afhjúpast sem það sem hann er: næringarskortur í samfélagsgerðinni.