Um stefnu KÍ í skóla- og menntamálum

Fréttir|2. desember 2014

Að undanförnu hefur staðið yfir málefnavinna hjá Kennarasambandinu og aðildarfélögum í þeim tilgangi að setja fram stefnu um brýn verkefni í skóla- og menntamálum.

Stefnan felur í sér baráttumál sem kennarasamtökin hafa lengi talað fyrir og haldið á lofti og er hún jafnframt útlistun á afstöðu til stefnumálanna í hvítbók menntamálaráðherra. Við teljum að líta þurfi á nám og skólagöngu barna og ungmenna sem eina heild, frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla. Hér hafa samtök okkar mikið fram að færa því við störfum í öllum skólum landsins utan háskóla.

Læsi
Ekki þarf að hafa mörg orð um það að góð lestrarfærni er undirstaða þess að börn og ungmenni nái tökum á námi sínu og forsenda virkrar samfélagsþátttöku. Góð tök á tungumálinu á unga aldri ráða miklu um lestrarfærni og er grunnurinn að þessu lagður í leikskóla og fyrstu námsárum í grunnskóla. En lestrarfærni þarf að þjálfa áfram út grunnskólann með fjölbreyttum hætti í öllu námi og líka þegar komið er í framhaldsskóla. Auka þarf framboð á fjölbreytilegu náms- og kennsluefni fyrir öll skólastig og lestrarefni við hæfi allra aldurshópa.

Í skólastarfinu eru það kennararnir sem skipta höfuðmáli fyrir nám og námsárangur barna og ungmenna. Þess vegna þarf að beina sjónum að kennurunum til að gera þeim kleift að vinna að góðri lestrarfærni til að bæta námsárangur og námsframvindu á öllum skólastigum.

Mjög brýnt er að fjölga leikskólakennurum í leikskólum landsins, en tölur sýna að hlutfall þeirra á landsvísu er langt undir þeim stöðugildafjölda sem kennaramenntunarlögin gera kröfu um. Í skólum þarf að vera fyrir hendi markviss kennslufræðileg ráðgjöf fyrir kennara og þeir að hafa svigrúm í starfi til að sinna börnum og ungmennum sem eiga í erfiðleikum með læsi. Einnig þarf að auka auka framboð á símenntun um læsi fyrir kennara og veita stuðning við starfsþróun þeirra á sviðinu.

Í leikskólum eru til miklar upplýsingar um niðurstöður skimana á hljóðkerfisvitund barna sem þurfa að fylgja þeim þegar þau byrja í grunnskóla þannig að nýta megi þær til að vinna gegn erfiðleikum við lestrartileinkun. Með sama hætti þurfa upplýsingar um læsisvanda í grunnskóla að skila sér með nemendum þegar þeir byrja í framhaldsskóla og nýta þarf þær til að sinna þörfum þeirra nemenda sem eiga við þennan vanda að etja.

Auk þess að skima reglulega málþroska barna í leikskóla og á yngstu stigum grunnskóla þarf að leggja mikla áherslu á að bregðast strax við vísbendingum um lestrarvanda með markvissri kennslu og stuðningi við börn og foreldra. Huga þarf sérstaklega að því að auka stuðning við börn, ungmenni og foreldra sem hafa annað móðurmál en íslensku. Gera þarf átak í því að stytta biðlista eftir greiningu á tal- og málþroskaröskunum barna, meðferð og þjálfun og fjölga sérfræðingum á þessu sviði í skólunum.

Nám og námstími 

Til að fleiri nemendur ljúki námi í framhaldsskóla á eðlilegum tíma þarf að ráðast í ýmsar aðgerðir til að gera grunnskólum og framhaldsskólum kleift að mæta breytilegum þörfum ólíkra nemendahópa.

Skima þarf fyrir áhættuþáttum brotthvarfs í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum og veita nemendum sem eru í brotthvarfshættu viðeigandi úrræði og ráðgjöf. Efla þarf náms- og starfsráðgjöf fyrir nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum svo að náms- og starfsval endurspegli hæfileika og áhugasvið. Til að ýta undir áhuga nemenda á starfsnámi þarf að efla verklegt starfsnám í efstu bekkjum grunnskóla og kynningar fyrir þá á starfsnámi í framhaldsskólum.

Auka þarf samfellu í námi á mörkum grunnskóla og framhaldsskóla og skýrar leiðir þurfa að vera til staðar fyrir nemendur til að fara á milli skólastiga á mismunandi námshraða og til að stunda nám samtímis á tveimur skólastigum. Virkja þarf þann sveigjanleika sem núverandi lög um grunnskóla og framhaldsskóla fela í sér.

Fjölbreyttar námsleiðir þurfa að vera við hæfi allra nemenda í framhaldsskólum sem veita tryggan undirbúning fyrir áframhaldandi nám og störf á vinnumarkaði.

Jafnrétti til náms í framhaldsskólum þarf að tryggja óháð aldri, og þurfa námsgögn og námsdvöl að vera nemendum að kostnaðarlausu.
Gera þarf sömu gæðakröfur til aðila sem sinna fræðslu á framhaldsskólastigi. Í framhaldsfræðslulögum þurfa að vera skýr ákvæði um rétt nemenda, fagleg gæði og menntun kennara.

Á heimasíðu KÍ eru nánari upplýsingar um starfshópa ráðuneytisins um læsi, námstíma og starfsnám, sem og fulltrúana sem KÍ hefur tilnefnt í rýnihópa og samráðshóp.

Aðalheiður Steingrímsdóttir
varaformaður Kennarasambands Íslands

Greinin birtist í 4 tbl. Skólavörðunnar. Hægt er að nálgast Skólavörðuna hér.