Um sextíu tilnefningar til Orðsporsins 2024

Fréttir|23. janúar 2024

Hvatningarverðlaun leikskólans, Orðsporið, verða veitt á Degi leikskólans 6. febrúar. Tilnefningar eru fjölmargar og fleiri en áður.

Um sextíu tilnefndingar hafa borist í Orðsporið 2024 en frestur til að senda inn tilnefningu er liðinn. Orðsporið eru hvatningarverðlaun leikskólans sem verða veitt í ellefta sinn á Degi leikkólans, 6. febrúar næstkomandi. 

Hvatningarverðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi skólastarf eða umbætur og þróun í menntamálum – eða í kennsluháttum á leikskólastiginu. 

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur 6. febrúar ár hvert en það var einmitt á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu sín fyrstu samtök. 

Þessi hafa fengið Orðsporið:

  • 2023 Hafnarfjarðarbær
  • 2022 Leikskólinn Aðalþing
  • 2021 Leikskólastigið
  • 2020 Ekki veitt
  • 2019 Seltjarnarnesbær
  • 2018 Hörgársveit
  • 2017 Framtíðarstarfið
  • 2016 Ásmundur Örnólfsson aðstoðarleikskólastjóri
  • 2015 Kópavogsbær og sveitarfélagið Ölfus
  • 2014 Okkar mál – þróunarverkefni
  • 2013 Súðavíkurhreppur / Kristín Dýrfjörð og Margrét Pála Ólafsdóttir

Valnefnd um Orðsporið 2024 er skipuðu fulltrúum Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, barna- og menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og samtakanna Heimili og skóla. Nefndarinn bíður mikið verkefni við að velja úr tilnefningum sem allar bera leikskólastarfi fagurt vitini. 

Kennarar, stjórnendur og starsfólk leikskólanna er hvatt til að halda upp á Dag leikskólans. 

Orðspor liðinna ára